Landssöfnun Lions 17.-19. apríl 2015

Rauða fjöðrin seld til að kaupa leiðsöguhunda fyrir blinda Hver hundur kostar 8-10 milljónir króna þegar allt er talið. Þörf er á 14-16 hundum á Íslandi en aðeins 7 verða í þjónustu á komandi sumri. Lionsfólk á Skagaströnd verður á ferðinni á föstudagskvöldið og mun ganga í hús og safna. Dagana 17. – 19. apríl fer landssöfnun Lions, Rauða fjöðrin, fram um allt land. Markmiðið er að safna í sjóð til að fjármagna kaup á leiðsöguhundum fyrir blinda í samvinnu við Blindrafélagið og Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Hver hundur getur kostað allt að 10 milljónir króna og unnið í allt að 10 ár. Hundarnir eru sérvaldir með hliðsjón af eiginleikum þeirra og eru tilbúnir til starfa við 2 1/2 árs aldur eftir gríðarlega þjálfun. Vinnusamband manns og hunds byggir síðan ekki síst á vináttu þeirra og kærleika. Leiðsöguhundar bæta lífsgæði blindra og sjónskertra verulega og stuðla að aukinni virkni þeirra í samfélaginu. Lionsfélagar verða á ferðinni þessa helgi með rauðu fjöðrina til sölu. Þeir verða í verslunarmiðstöðvum og á fleiri fjölförnum stöðum. Auk þess verða valgreiðslur sendar í heimabanka og hringja má í söfnunarnúmer. Verndari söfnunarinnar er hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands. Söfnunarnúmer Auk þess að kaupa rauðu fjöðrina má leggja verkefninu lið með því að greiða valgreiðslu í heimabanka eða millifæra upphæð að eigin vali inn á reikning Lions: 0111-26-100230, kt. 640572-0869. Einnig er hægt að hringja í söfnunarsímanúmer: Styrkur að fjárhæð 1.000 kr. skuldfærist af símreikningi þegar hringt er í símanúmerið 904 1010. Styrkur að fjárhæð 3.000 kr. skuldfærist af símreikningi þegar hringt er í símanúmerið 904 1030. Styrkur að fjárhæð 5.000 kr. skuldfærist af símreikningi þegar hringt er í símanúmerið 904 1050.

Vortónleikar Lóuþræla á Hvammstanga

Ágætu Húnvetningar Nú er komið að vortónleikum Karlakórsins Lóuþræla í Félagsheimili Hvammstanga, laugardaginn 18. apríl 2015. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00. Dagskráin fjölbreytt að vanda. Söngstjóri: Guðmundur St. Sigurðsson. Undirleikari: Elinborg Sigurgeirsdóttir. Einsöngvari: Guðmundur Þorbergsson. Gestakór er Sprettskórinn úr Kópavogi Söngstjóri: Atli Guðlaugsson Undirleikari: Flosi Einarsson Einsöngvari: Bjarni Atlason Kaffi, kökur og kátína í boði fyrir kr. 3.000 Enginn posi á staðnum. Karlakórinn Lóuþrælar

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 15. apríl 2015 kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins. Dagskrá: Bjarmanes Gjaldskrá sorphirðu Samgönguáætlun 2015-2018 Landsþing Sambands ísl. sveitafélaga /dagskrá. Bréf: Ráðgjafafyrirtækisins Ráðrík ehf, dags. 24. mars 2015 Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps, dags. í apríl 2015 Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga, dags. 18. mars 2015 Sóknarnefndar Hólaneskirkju, dags. 28. mars 2015 Bjarna G. Stefánssyni, sýslumanni, 25. mars 2015 Fundargerðir: Tómstunda og menningarmálanefndar, 31.03.2015 Stjórnar Róta bs. 24.02.2015 Upplýsinga og kynningarfundur Róta bs, 11.02.2015 Stjórnar Róta bs. 31.03.2015 Stjórnar Sambands ísl. sveitarf., 27.03.2015 Ársreikningur 2014 (fyrri umræða) Önnur mál Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Þökulagning 1990 Þessi fríski hópur vann að þökulagningu í ágústlok 1990 í hallanum sunnan við Stóra Berg, sem sést í baksýn, en það stóð sunnan við Fellsbraut nálægt kirkjunni. Á myndinni eru frá vinstri: Þóra Ásgeirsdóttir, Rakel Jónsdóttir, Magnús Helgason, Milan Djurica, Kristín Þórðardóttir, Bryndís Ingimarsdóttir (aftast), Ragnar Friðrik Gunnlaugsson, Þröstur Árnason, Jóhannes Indriðason, Jósef Stefánsson og Hjörtur Jónas Guðmundsson

Starf flokkstjóra vinnuskóla

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir flokksstjórum til starfa í Vinnuskóla sveitarfélagsins í sumar. Skilyrði er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri og reynsla af sambærilegum störfum kostur. Umsóknareyðublöð má fá á skrifstofu sveitarfélagsins en umsóknarfrestur er til 9. maí n.k. Skráning í vinnuskóla fer fram á skrifstofu sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að vinnuskólinn hefji störf um mánaðarmót maí –júní. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni í síma 455 2700. Sveitarstjóri

Lausar kennarastöður við Höfðaskóla

Við Höfðaskóla eru lausar kennarastöður. Meðal kennslugreina eru handmennt, myndlist, stuðningskennsla og almenn kennsla. Umsóknarfrestur er til 23. apríl n.k. Nánari upplýsingar veitir Vera Ósk Valgarðsdóttir skólastjóri í síma 452 2800

Styrkir úr Atvinnuþróunarsjóði Skagastrandar

Atvinnumálanefnd Skagastrandar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Atvinnuþróunarsjóði Skagastrandar. Umsóknarfrestur er til kl. 17:00 þann 30. apríl 2015 og skal skila umsóknum á sérstöku umsóknarformi sem er aðgengilegt á heimasíðunni www.skagastrond.is Um Atvinnuþróunarsjóð: Markmið sjóðsins er að hvetja til jákvæðrar umræðu og verkefna á sviði atvinnuþróunar í Sveitarfélaginu Skagaströnd. Sjóðnum er ætlað að styðja við frumkvæði íbúa og hvetja til samstarfs og nýsköpunar í sveitarfélaginu, sem og að laða að verkefni og athafnafólk. Styrkir sem veittir eru úr sjóðnum eru fyrst og fremst verkefna- og framkvæmdastyrkir. Ekki eru veittir rekstrarstyrkir, styrkir til að mæta opinberum gjöldum eða til að greiða skuldir. Umsóknir Sótt er um á þar til gerðu umsóknarformi sem er aðgengilegt á á vefsíðunni http://www.skagastrond.is Umsóknir sem berast eftir lok skilafrests eða uppfylla ekki kröfur um umbeðnar upplýsingar koma ekki til greina við úthlutun. Umsækjendur geta verið einstaklingar, félög og/eða fyrirtæki. Umsókn skal miðast við að framkvæmd hugmyndar eða meginumsvif vegna verkefnisins verði á Skagaströnd. Við mat umsókna verður gerð lágmarkskrafa um samfélagsleg áhrif verkefnis. Í umsókn skal gera skýra grein fyrir verkefninu, markmiðum þess og væntum árangri. Umsækjendur skulu gera skýra grein fyrir tímaáætlun og áætluðum heildarkostnaði við verkefnið. Úthlutun styrkja Til úthlutunar í maí 2015 verða allt að 1 milljón króna. Veittir eru styrkir til að standa straum af allt að 50% af heildarkostnaði við viðkomandi verkefni. Upphæð styrkja getur verið frá 100.000 kr. til 1.000.000 kr. Nánari lýsing á forsendum úthlutunar er í fylgiblaði með umsóknarformi. Skagaströnd, 1. apríl 2015 Sveitarstjóri

Mynd vikunnar

Spákonufellsbærinn og kirkjan. - Þessar byggingar stóðu þar sem kirkjugarðurinn sóknarinnar er í dag. Samkvæmt Byggðin undir Borginni var alkirkja á Spákonufelli a.m.k. allt frá 1318 því frá þeim tíma er til máldagi kirkjunnar. Kirkjan á myndinni var fyrsta timburkirkjan, sem þarna stóð, en hún var byggð 1852. Fram að því höfðu kirkjurnar verið byggðar úr torfi og grjóti. Þessi var notuð þar til ný kirkja var svo vígð á Skagaströnd 17. júní 1928 og enn ný kirkja þar í október 1991. (Heimildir: Byggðin undir Borginni bls 34 - 37 og Ágrip af sögu Spákonufells- og Hólaneskirkna 1300 - 2012 bls 26 - 28 eftir Lárus Ægi Guðmundsson).

Fundur um styrki til atvinnu- og menningarmála

Fundur verður haldinn í Fellsborg þriðjudaginn 31. mars næstkomandi kl. 17:00. Á fundinum verður farið yfir möguleika er varða styrkveitingar til atvinnu og menningarmála á vegum Uppbyggingarsjóðs Norðurlands vestra. Einnig verður kynning á Atvinnuþróunarsjóði Skagastrandar. Allir sem hafa áhuga á atvinnu- og menningarmálum eru hvattir til að mæta. Atvinnumálanefnd Skagastrandar

Krabbameinsfélag

Aðalfundur Krabbameinsfélags Austur -Húnavatnssýslu verður haldinn þriðjudaginn 31. mars kl. 18:00 á Hótel Blönduósi. Viljum við minna á aðalfundinn en á dagskránni verða venjuleg aðalfundarstörf en jafnframt fyrirlesur sem Arndís Halla Jóhannesdóttir flytur. Arndís er öflug ung kona, markþjálfi og þroskaþjálfi og nefnir hún fyrirlesturinn: Mikill hlátur og smá grátur og veltur hún fyrir sé hvernig við bregðumst við því sem við þurfum að takast á í vinnu eða einkalífi. Starfsemi Krabbameinsfélagsins beinist að fræðslu og stuðningi við þá sem greinast með krabbamein, fjölskyldum og vinum þeirra. Styrkur þess felst hins vegar í fjölda félagsmanna og þann velvilja héraðsbúa að taka þátt í fjáröflunarstarfssemi á vegum félagsins er sölufólk gengur í hús. Þannig styðjum við samborgara okkar og félagið þakkar þann mikla stuðning til fjölda ára. Meðal verkefna síðari ára, hefur félagið greitt leigu fyrir íbúðir til þeirra sem eru í krabbameinsmeðferð í Reykjavík og aðstandenda. Eins höfum við stutt við fjölskyldur, gefið búnað og tæki til Heilbrigðisstofnunar og tæki til Sæborgar á Skagaströnd. Nýlega lögðum við fram fjárhæð er rennur í upphæð til að kaupa nýtt ómskoðunartæki á sjúkrahúsi Akureyrar og sem notað yrði til nánari skoðunar í hefðbundinni hópleit á brjóstum kvenna. Minnum á minningarkort Krabbameinsfélagsins en sími sölufólks er í Glugganum og eru þau einnig seld í Lyfju á Blönduósi og www.krabb.is Allir eru velkomnir á aðalfundinn og boðið verður uppá súpuveitingar á fundinum. Stjórnin