Mynd vikunnar

Daglegt líf að sumri. Myndin er af tveim óþekktum börnum á sumardegi á Skagaströnd. Fyrir aftan þau til vinstri er assistantastofan, sem var íbúðarhús verslunarmannsins sem sá um verslunina við hliðina. Næst assistantastofunni er pakkhúsið og svo verslunarhúsið fremst. Húsið á bak við með svartan gafl er Sæmundsenbúð. Þessi hús stóðu ekki langt frá Einbúanum á svæðinu nálægt því þar sem Skátaskálinn stendur í dag. Evald Hemmert tók myndina en samkvæmt "Byggðin undir Borginni" (bls 118 - 119) var hann verslunarstjóri Höpnhnersverslunar þarna frá 1891 fram yfir 1920 þegar verslunin lagði upp laupana. Sennilega hefur því myndin verið tekin einhverntíma kringum aldamótin 1900.

Kaffihúsið Bjarmanes er til leigu

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir umsóknum um að leigja og reka Kaffi- og menningarhúsið Bjarmanes á Skagaströnd. Húsið er laust til afnota og í því er búnaður til reksturs kaffihúss. Bjarmanes er fallegt steinhús, byggt 1913 en var allt endurbyggt 2004, og hefur þann einstaka anda sem einkennir mörg gömul hús. Það stendur miðsvæðis með góðu útsýni yfir höfnina og Húnaflóann. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar fyrir 25. mars 2015 þar sem m.a. komi fram hugmyndir umsækjanda um reksturinn. Umsóknum má einnig skila rafrænt á netfangið magnus@skagastrond.is Fyrir hönd sveitarstjórnar, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri.

Nes listamiðstöð er á Eyrarrósarlistanum 2015

Eyrarrósin er viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Markmið Eyrarrósarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar, á sviði menningar og lista. Það eru Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík sem staðið hafa saman að verðlaununum frá upphafi árið 2005. Valnefnd, skipuð fulltrúum Byggðastofnunar, Listahátíðar í Reykjavík og Flugfélags Íslands ásamt einum menningarfulltrúa á starfssvæði Byggðastofnunar; tilnefnir þrjú verkefni og hlýtur eitt þeirra Eyrarrósina. Handhafar Eyrarrósarinnar frá upphafi: Þjóðlagahátíðin á Siglufirði (2005) LungA, Listahátíð ungs fólks á Austurlandi (2006) Stranda­galdur á Hólmavík (2007) Rokkhátíð alþýðunnar; Aldrei fór ég suður (2008) Landnámssetur Íslands (2009) Bræðslan á Borgarfirði eystra (2010) Sumartónleikar í Skálholtskirkju (2011) Safnasafnið á Svalbarðsströnd (2012) Skaftfell, miðstöð myndlistar á Austurlandi (2013) Áhöfnin á Húna (2014) Listi yfir þau tíu verkefni sem eiga möguleika á því að hljóta Eyrarrósina í ár hefur verið birtur. Í ár barst mikill fjöldi umsókna um Eyrarrósina hvaðanæva af landinu. Eyrarrósarlistinn 2015 birtir nöfn þeirra tíu verkefna sem eiga möguleika á að hljóta Eyrarrósina í ár. Þann 18. mars næstkomandi verður tilkynnt hvaða þrjú verkefni hljóta tilnefningu til verðlaunanna. Eitt þeirra hlýtur að lokum Eyrarrósina, 1.650.000 krónur og flugferðir innanlands frá Flugfélagi Íslands en hin tvö verkefnin hljóta peningaverðlaun og flugferðir frá Flugfélagi Íslands. Eyrarrósarlistinn 2015 * Braggast á Sólstöðum * Ferskir vindar * Frystiklefinn * Listasafn Árnesinga * Listasafnið á Akureyri * Nes Listamiðstöð * Orgelsmiðjan á Stokkseyri * Verksmiðjan á Hjalteyri * Þjóðlagasetrið á Siglufirði Eyrarrósin verður afhent með viðhöfn laugardaginn 4.apríl næstkomandi á Ísafirði. Að venju mun Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar, afhenda verðlaunin.

Námsstyrkir

Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2015 tók sveitarstjórn Skagastrandar ákvörðun um að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 20 þús. kr. skólaárið 2014-2015 en styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð. Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 31. mars 2015. Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina. Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðunni http://www.skagastrond.is/samthykktir.asp og þar má einnig fá/finna umsóknareyðublöð. Reglur um styrkina má finna hér. Umsókn um styrk má finna hér. Aksturstyrkur vegna dreifnáms Jafnframt er auglýstur frestur til 1. maí 2015 til að sækja um sérstakan stuðning vegna dreifnáms fyrir vorönn 2015. Sveitarstjórn samþykkti Reglur um stuðning vegna dreifnáms veturinn 2014-2015 á fundi 12. september 2014 og vísast til þeirra á heimasíðu sveitarfélagsins. Reglur um dreifnámsstyrki Umsókn um styrk vegna dreifnáms Sveitarstjóri

Frístundakort fyrir grunnskólanema

Á fundi sveitarstjórnar 25. febrúar 2015 voru samþykktar reglur um frístundakort ásamt umsóknareyðublaði. Frístundakortið sem hefur verið í boði frá 2006 byggir á því að foreldrar barna með lögheimili á Skagaströnd eiga rétt á 15 þúsund króna styrk, fyrir hvert barn á grunnskólaaldri, sem þátt tekur í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Tilgangur frístundakorta er að hvetja börn og unglinga til þátttöku í hvers konar íþrótta- og æskulýðsstarfi og að jafna möguleika foreldra til að börnum sé það mögulegt. Frístundakortin taka gildi 1. janúar ár hvert og gilda í eitt ár. Skil á gögnum vegna frístundaþátttöku síðastliðins árs er í síðasta lagi 31. janúar næsta árs. Eftir það fellur réttur þess árs niður. Þegar greitt hefur verið fyrir það námskeið eða starf sem grunnskólabarn vill eða hefur tekið þátt í, er farið með kvittunina á skrifstofu sveitarfélagsins þar sem sótt er um frístundakort. Fjárhæð sem nemur verðgildi frístundakorts verður síðan endurgreidd vegna viðurkennds frístundastarfs. Reglur um frístundakort Umsóknareyðublað

Mynd vikunnar

Hótel Dagsbrún. Fyrstu árin eftir að stjórnsýsluhúsið var byggt var Hótel Dagsbrún rekið á miðhæðinni. Fyrstu rekstraraðilar hótelsins voru hjónin Sveinn Ingi Grímsson og Líney Jósefsdóttir. Þau eru hér fremst á myndinni til hægri en síðan koma tvær starfsstúlkur, Þórhalla Þórhallsdóttir og óþekkt kona. Myndin var tekin í veitingasal hótelsins en það var í eigu Skagstrendings hf á þessum tíma. Eftir að þau hjón Sveinn Ingi og Líney hættu rekstri hótelsins hafa nokkrir aðilar spreytt sig á að reka það en allir hætt þannig að í nokkur ár hefur engin starfsemi farið þar fram. Hótelið er nú í eigu Fisk Seafood á Sauðárkróki. Ef þú veist hvað konan lengst til vinstri heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Aðalfundur Rauða krossins á Skagaströnd

Aðalfundur Rauða krossins á Skagaströnd verður haldinn miðvikudaginn 11. mars kl. 20:30 í húsnæði deildarinnar að Vallarbraut 4. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Vonumst til þess að sjá sem flesta Rauði krossinn á Skagaströnd

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 25. febrúar 2014 kl 0800 á skrifstofu sveitarfélagsins. Dagskrá: Fjármál sveitarfélagsins Reglur um frístundakort Snjómokstur á Skagastrandarhöfn Fjárhagslegt uppgjör vegna málefna fatlaðra Bréf: Til forstjóra Vegagerðarinnar, dags. 30. janúar 2015 Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, dags 30. janúar 2015 Styrktarsjóðs EBÍ, dags. 12. febrúar 2015 Hildar Ingólfsdóttur, dags. 12. febrúar 2015 Aabenraa Kommune, 18. desember 2014 Johanna Alatalo fh. Lohja, dags. 4. febrúar 2015 Dúa Landmark, dags. 27. janúar 2015 Verkís, fh. Sv.fél. Skagafjarðar, dags. 28. janúar 2015 Óbyggðanefndar, dags. 26. janúar 2015 Ungmennaráðs UMFÍ, dags. 3. febrúar 2015 Fundargerðir: Stjórnar Róta bs. 9.01.2015 Stjórnar SSNV, 21.01.2015 Stjórnar SSNV, 17.02.2015 Heilbrigðisnefndar Nl. vestra, 05.01.2015 Stjórnar Sambands ísl. sveitarf. 30.01.2015 Stjórnar Hafnasambands Íslands, 13.02.2015 Skólanefnd FNV, dags. 11.02.2015 Önnur mál Sveitarstjóri

Námskeið fyrir félagsmenn Kjalar

Kjölur stéttarfélag vill gjarnan bjóða félagsmönnum sínum á eftirtalin námskeið þeim að kostnaðarlausu. Matjurtagarðurinn þinn. Að loknu þessu námskeiði hefur þú lært um sáningu, ræktun, umönnun í ræktun matjurta, jarðveg og áburðargjöf. Sýndar eru mismunandi gerðir ræktunarbeða, karma og skjólgjafa. Saga matjurtaræktar á Íslandi reifuð, skýrt frá uppruna tegundanna sem teknar eru til umfjöllunar, eðliseinkennum um 40 tegunda og yrkja ásamt því að fjalla lítillega um hollustu og lækningamátt matjurta. Farið er yfir sjúkdóma og lýst nokkrum aðferðum við geymslu og matreiðslu. Leiðbeinandi Jón Guðmundsson, garðyrkjufræðingur Lengd: 3 klst. Hvenær: Sauðárkrókur 18.apríl 17 – 20. Blönduós 18.apríl 13 – 16. Hvammstangi 18.apríl 9 – 12. Siðfræði og samskipti. Hvernig er hægt að nota siðfræðikenningar til að takast á við verkefni daglegs lífs? Hvaða verkfærum býr siðfræðin yfir til þess að takast á við vandamál? Hvernig er hægt að nota hana markvisst til að meta gildi og verðmæti. Arnrún fjallar einnig um siðfræði og samskipti. Framkoma skiptir öllu í mannlegum samskiptum.Hvernig getur siðfræðin hjálpað til? Fyrirlestur, umræður og verkefnavinna. Leiðbeinandi Arnrún Halla Arnórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og doktorsnemi í hagnýtri siðfræði. Lengd: 4 klst. Hvenær: Sauðárkrókur 11.mars 17 – 21. Blönduós 12.mars 17 – 21. Hvammstangi 17.mars 18 – 22. Spjaldtölva (iPad) fyrir byrjendur. Hagnýtt námskeið fyrir byrjendur. Farið yfir grundvallaratriðin í iPad eða spjaldtölvum og helstu forrit sem fylgja tækinu. Kennt á „App store“ og hvernig á að finna og ná í hentug forrit. Farið í helstu stillingar. Leiðbeinandi Ingvi Hrannar Ómarsson, kennari og sérfræðingur. Lengd 3 klst. Hvenær: Sauðárkrókur 23.febrúar 17 – 20. Blönduós 9.mars 17 – 21. Hvammstangi 23.mars 18 – 22.

Heilsugæsla HSB-hvatning

Breytingar í sambandi við leghálskrabbameinsleit. Að undanförnu hefur Krabbameinsfélag Íslands staðið fyrir átaki til þess að hvetja konur til að mæta í leghálskrabbameinsleit. Þátttakan á Íslandi hefur farið minnkandi undanfarin ár og er nú víða undir 50 %. Sérstaklega hefur þátttakan dregist saman á landsbyggðinni. Sú breyting hefur orðið á að nú framkvæma ljósmæður leghálssýnatökuna og er það nú þegar byrjað á Leitarstöð Krabbameisfélagsins og á heilsugæslustöðvum víðast hvar um landið. Það er því hægt að panta tíma á heilsugæslustöðinni hvenær sem er, þegar boðsbréf hefur borist. Þessi háttur er hafður á í mörgum nágrannalöndum okkar og þar er þátttakan mun meiri. Leghálskrabbameinsleit skilar góðum árangri svo framarlega sem konur mæta. Dánartíðni af völdum leghálskrabbameins hefur lækkað um 90 % síðan skipulögð leit hófst. Allar konur á aldrinum 23-65 ára sem hafa einhvern tíman lifað kynlífi ættu að þiggja boð um leghálskrabbameinsleit á þriggja ára fresti vegna þess að það er ein mikilvægasta heilsuvernd sem konum stendur til boða. Regluleg leghálskrabbameinsleit hefur álíka heilsuverndandi áhrif og bólusetning barna. Ef þú hefur fengið boðsbréf frá Leitarstöðinni, getur þú pantað tíma fyrir leghálsskoðun hjá ljósmóðurinni á Heilsugæslustöðinni á Blönduósi í síma 4554100. Með því að mæta í leghálssýnatöku á þriggja ára fresti, getur þú nánast komið í veg fyrir að þú fáir leghálskrabbamein. Áfram verður komið með brjóstamyndatöku annað hvert ár og reiknað er með að hluti kvenna mæti í sýnatökuna í tengslum við hana. Heilsugæslan