Bilun í vatnsveitu

Vegna bilunar í vatnsveitu má búast við tímabundnu vatnsleysi í dag. Unnið er að viðgerð og standa vonir til að veitan verði komin í samt lag í dag. Bilunin er dælum á vatnstökusvæði og þar sem vatnsforði í jöfnunartanki er takmarkaður er fólk beðið um að fara sparlega með vatn og láta ekki renna að óþörfu. Sveitarstjóri

Fréttatilkynning um héraðsfund í A-Hún

Sveitarstjórnir í A-Hún héldu sameiginlegan fund í Fellsborg á Skagaströnd fimmtudaginn 24. ágúst til að ræða sameiningarmál sveitarfélaga. Á fundinum kynnti Oddur G. Jónsson verkefnastjóri hjá KPMG hvernig hefur verið staðið að undirbúningi í öðrum sveitafélögum þar sem sameiningaviðræður hafa staðið yfir. Oddvitar sveitarstjórna í Skagabyggð, Húnavatnshreppi, Skagaströnd og Blönduósi gerðu grein fyrir afstöðu sinni og sinna sveitarstjórna. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem því er beint til sveitarstjórna að þær taki afstöðu til þess hver fyrir sig hvort þær vilji hefja formlegar viðræður um sameiningu sveitarfélaga í Austur Húnavatnssýslu og tilnefni jafnframt fulltrúa í sameiningarnefnd ef vilji er til að hefja það ferli.

Kynningarfundir vegna Vörusmiðju BioPol

Kynningarfundir vegna starfsemi Vörusmiðju BioPol á Skagaströnd munu verða haldnir í næstu viku. Vörusmiðjan mun hafa öll tilskilin leyfi til matvælaframleiðslu og því verður mögulegt fyrir frumkvöðla og smáframleiðendur að taka fyrstu skrefin í þróun á vörum sínum eða stunda eiginlega framleiðslu. Einnig verður aðstaða til að undirbúa veislur og bakstur fyrir stór tilefni. Hægt verður að leigja aðstöðuna undir námskeiðahald. Leigugjaldi verður stillt í hóf þar sem markmiðið er að styðja smáframleiðendur í að koma vöru sinni á markað og stuðla þannig að aukinni verðmætasköpun í heimabyggð. Fundirnir verða sem hér segir: Laugarbakki: Félagsheimilið Ásbyrgiþriðjudaginn 22. ágúst kl. 15.00 Skagafjörður: Kakalaskálimiðvikudaginn 23. ágúst kl. 15.00 Skagaströnd: Gamla Kaupfélagið, efrihæðfimmtudaginn 24. ágúst kl. 14.00

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 16. ágúst 2017 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8.00. Dagskrá: Fundarboð héraðsfundar A-Hún Bréf Blönduósbæjar dags. 5. júlí 2017 Framkvæmdir 2017 Ársreikningur Félags og skólaþjónustu A-Hún Ársreikningur Byggðasamlags um menningu og atvinnumál Bréf Íbúðalánasjóðs, dags. 28. júní 2017 Þjóðskrár Íslands, dags. 12. júlí 2017 Forsætisráðuneytisins, dags. 5. júlí 2017 Vegagerðarinnar, dags. 15. júní 2017 Fundargerðir: Tómstunda og menningarmálanefndar, 02.07.2017 Aðalfundar Norðurár bs, 29. júní 2017 Stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 30.05.2017 Stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga, 07.06.2017 Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 30. 06.2017 Önnur mál Sveitarstjóri

Jákvæð umfjöllun um golfvöllinn

Golf á Skagaströnd: Háagerðisvöllur er fínn, krefjandi og þrifalegur Í fréttamiðlinum Miðjunni er góð og jákvæð umfjöllun um golfvöllinn á Skagaströnd. Þar segir: Það fyrsta sem mætir fólki sem kemur á Háagerðisvöll á Skagaströnd er snyrtimennska. Þar er allt hreint og öllu er sýnilega vel viðhaldið. Það næsta sem leitar á hugann, er hvernig unnt er að hafa eins góðan golfvöll, og Háagerðisvöll, í eins fámennu sveitarfélagi og Skagaströnd er. Það er nokkuð merkilegt. Svarið er eflaust það sama. Mikil vinna fárra manna sem greinilega telja ekki eftir sér að sinna vellinum. Þeim hefur tekist vel upp. Golfskálinn er lítill, en hann, sem og annað, er hreinn og umgengnin er til fyrirmyndar. Völlurinn er níu holur og par 36, eða 72 þegar leiknar eru átján brautir, tveir hringir. Völlurinn er 2543 metrar, eða 5086, af gulum teigum og 2254, eða 4508, af rauðum teigum. http://www.midjan.is/golf-skagastrond-haagerdisvollur-er-finn-krefjandi-og-thrifalegur/

Skrifstofan lokar vegna sumarleyfa

Skrifstofa Sveitarfélagsins Skagastrandar Skrifstofa sveitarfélagsins verður lokuð vegna sumarleyfa dagana 10. – 21. júlí 2017. Skrifstofan opnar aftur eftir sumarleyfi 24. júlí. Sveitarstjóri

Opnunartími hjá Bjarmanes Café

Bjarmanes Café - Húsið við hafið - Afgreiðslutímar / Opening hours Mánudagur - Miðvikudagur / Monday - Wednesday 11:30-18:00 Fimmtudagur – Föstudagur / Thursday - Friday 11:30-22:00 Laugardagur / Saturday 14:00-22:00 Sunnudagur / Sunday 14:00-18:00 Súpa dagsins og brauð / Soup of the day, served with bread 990 kr. Terta dagsins / Cake of the day 1190 kr. Sími/Phone 452-2850

Hjallastefnan á Skagaströnd óskar eftir starfskrafti

Hjallastefnuleikskólinn Barnaból á Skagaströnd óskar eftir kennara til starfa með leikskólakennaramenntun eða aðra uppeldismenntun á háskólastigi. Jafnréttisuppeldi, jákvæðni, agi, skapandi hugsun, félagsþjálfun og einstaklingsstyrking eru innviðir hugmyndafræði Hjallastefnunnar, öllum börnum til hagsbóta. Hæfniskröfur og viðhorf: ● Hæfni í mannlegum samskiptum ● Brennandi áhugi fyrir jafnrétti ● Gleði og jákvæðni ● Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð ● Frumkvæði, áræðni og metnaður ● Stundvísi og snyrtimennska Áhugasömum er bent á að senda okkur umsókn í gegn um heimasíðu leikskólans: www.barnabol.hjalli.is og hægt er að hafa samband með tölvupósti á mariaosp@hjalli.is. Umsóknarfrestur rennur út 3.júlí 2017 Hlökkum til að fá umsókn frá þér! Kv.María Ösp Ómarsdóttir

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar fimmtudaginn 29. júní 2017 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 8.00. Dagskrá: Fjárhagsyfirlit 1. ársfjórðungur Málefni fatlaðra Erindi frá SSNV Ársreikningur Hólaness ehf Endurreikningur fasteignagjalda Bréf Lánasjóðs sveitarfélaga ehf SSNV, 10. maí 2017 Nes listamiðstöðvar, 12. júní 2017 Fundargerðir: Fræðslunefndar,15.06.2017 Stjórnar Byggðasamlags um menningur og atvinnumál, 9.03.2017 Stjórnar Norðurár bs, 13. júní 2017 Stjórnar Félags- og skólaþjónustu, 19.06.2017 Stjórnar Hafnasambands Íslands, 23.05.2017 Stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, 19. 05.2017 Önnur mál Sveitarstjóri

Nes listamiðstöð, opið hús í júní

Nes Listamiðstöð Opið hús It’s that time again folks! This month there are many stories to share..... personal, political and global stories, stories of light and fire, and mythical beings, stories that are sewn, projected, cellotaped and spoken. Come to the Nes studio and experience some happiness !