07.12.2015
Bókasafn Skagastrandar verður lokað í dag, 07.12.2015, þar sem veðurspá er mjög slæm.
Bókavörður
07.12.2015
Veðurstofan hefur sent frá sér meðfylgjandi viðvörun.
Fundur var haldinn á Veðurstofunni í dag kl. 12:00. Í stuttu máli sagt mun þetta veður hafa áhrif um allt land með miklum truflunum á samgöngum, innanlandsflug mun stöðvast á meðan veður gengur yfir, millilandaflug seinni partinn á morgun og annað kvöld mun raskast eða stöðvast og vegasamgöngur á stórum hluta landsins mun stöðvast.
Ferill komandi lægðar og fallandi þrýstingur sem henni fylgir gæti aukið líkur á sjávarflóðum, þetta fer eftir því hvernig hún mun hitta á landið.
Spáð er ofsaviðri eða fárviðri víðast hvar á landinu með tilheyrandi hættu. Ofsaviðri eða fárviðir getur valdið tjóni á mannvirkjum. (Ofsaviðri = meðalvindhraði meiri en 28 m/sek, Fárviðri = meðalvindhraði meiri en 32 m/sek)
Miklar líkur eru á að óveðrið muni valda truflunum á rafmagnsdreyfingu.
Fundað verður aftur með Veðurstofunni kl. 14:00 í dag og kl. 20:00 í kvöld. Á fundinum í kvöld verða m.a. fulltrúar frá Vegagerðinni, ISAVIA, Landhelgisgæslunni og Landsneti. Við munum halda ykkur upplýstum eins og hægt er og senda ykkur frekari upplýsingar eftir fundina eins og þurfa þykir.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra mun upplýsa fjölmiðla og aðra aðila eftir hefðbundnum leiðum. Lögreglustjórar eru hvattir til að upplýsa samstarfsaðila í sínum umdæmum sem fyrst og huga að tímanlegri virkjun aðgerðarstjórna sinna.
Samhæfingarstöðin verður virkjuð á morgun en nánari tímasetning er ekki enn ákveðin. Einnig er í skoðun að lýsa yfir hættustigi rauður fyrir allt landið vegna veðursins.
06.12.2015
Breytingar vegna veðurútlits.
Veðurhorfur á mánudag 7. desember eru nú allt aðrar og verri en leit út fyrir í síðustu viku. Af þessum sökum færast viðburðir til og tvennt sem vera átti á mánudag er frestað fram á miðvikudaginn 9. desember:
Ljósin á jólatrénu verða kveikt miðvikudaginn 9. desember kl 16.30
Saumastofan Íris býður í kaffi miðvikudaginn 9. desember kl 15.00 – 17.30
04.12.2015
Þar sem reiknað er með að óveður gangi yfir Norðurland í kvöld og á morgun skal bent á að ekki er gert ráð fyrir snjómokstri fyrr en veður er gengið niður. Þó verður athugað með mokstur kl 9.00 á laugardagsmorgni samkvæmt áætlun Vegagerðar um Fellsbraut, Oddagötur og Strandgötu ef veður hamlar ekki.
Sveitarstjóri
04.12.2015
Svohljóðandi tilkynning hefur borist frá Almannavörnum:
Bakvakt almannavarnadeildar vill vekja athygli ykkar á slæmri veðurspá í kvöld og á morgun, sjá meðfylgjandi viðvörun Veðurstofunnar. Búast má við að færð spillist og að snjóflóðahætta aukist, þá sérstaklega á Norðurlandi á morgun.
„Annars staðar á landinu bætir einnig í vind síðdegis og undir kvöld verður víða orðið
norðaustan hvassviðri eða stormur (15-23 m/s) með skafrenningi og síðar snjókomu
þegar úrkomubakkinn færir sig norður yfir landið. Suðvesturland (þ.m.t.
höfuðborgarsvæðið) sleppur best við veðrið, en þar verður samt orðið allhvasst undir
kvöld með skafrenningi og dálítilli ofankomu um tíma.
Nú er nýsnævi víða um land og getur snjósöfnun í skafrenningi verið mjög hröð í gil
og fjallsbrúnir sem snúa undan vindi. Við þessar aðstæður getur snjóflóðahætta
skapast á skömmum tíma.
Athygli er einnig vakin á því að á morgun, laugardag, er útlit fyrir norðan storm með
stórhríð á norðanverðu landinu, en sunnanlands verða stöku él og skafrenningur. Í nótt
og á morgun má búast við að snjóflóðahætta aukist á Vestfjörðum og Norðurlandi.
Að lokum er útlit fyrir að lægi mikið á sunnudag og létti til, fyrst um landið
vestanvert. Þá má búast við talsverðu frosti.“
Með kveðju / Best regards
Eggert Magnússon
Lögreglufulltrúi – Verkefnastjóri
Detective Chief Inspector - Project Manager
Ríkislögreglustjórinn
The National Commissioner Of The Icelandic Police
Almannavarnadeild
Department of Civil Protection and Emergency Management
Phone: (+354) 444 2500
Mobile: (+354) 861 7683
Fax: (+354) 562 2665
Heimasíða www.almannavarnir.is
Facebook.com/Almannavarnir
04.12.2015
Nú lítur út fyrir að veður verði orðið sæmilegt mánudaginn 7. desember
og þá munum við kveikja ljós á jólatrénu okkar á Hnappstaðatúni kl. 17.00
Heyrst hefur að einhverjir jólasveinar séu sloppnir til
byggða og muni líta við.
Sveitarstjóri
Frestað vegna veðurs
04.12.2015
Afmæli
Saumastofan Íris er orðin 10 ára.
Í tilefni af þeim tímamótum verðum við með opið hús í kjallara Gamla Kaupfélagsins mánudaginn 7. desember kl. 17- 19.
Það verður heitt á könnunni og boðið upp á kakó og smákökur.
Vonumst eftir að sjá sem flesta.
Fjóla og Didda
Frestað til miðvikudags vegna veðurs
04.12.2015
Guðbjörg Gylfadóttir Íslandsmeistari.
Guðbjörg Gylfadóttir fær hamingjuóskir frá Magnúsi B. Jónssyni
sveitarstjóra á Skagaströnd eftir að hún hafði sett nýtt Íslandsmet í
kúluvarpi kvenna.
Íslandsmetið, sem var kast upp á 16.33 metra, setti hún 17. maí 1992.
Metið stendur enn og er að verða eitt af elstu Íslandsmetunum.
Myndin var tekin í júní 1992 á hótel Dagsbrún þar sem haldið var upp á
afrek þessarar glæsilegu íþróttakonu með litlu kaffiboði.
Í baksýn sér í Guðbjörgu Viggósdóttur en myndina tók Ólafur Bernódusson.
01.12.2015
Jólabókakvöld í Bjarmanesi
miðvikudaginn 2. des., kl. 20
Heimamenn lesa úr eftirtöldum bókum:
Dagný Rósa Úlfarsdóttir Hersetan á Norðurlandi vestra
Sigríður Stefánsdóttir Hundadagar
Valtýr Sigurðsson Syndarinn
Lárus Ægir Guðmundsson Kvenfélagið Eining 1927-2013
Guðmundur Egill Erlendsson Útkall
Hugrún Sif Hallgrímsdóttir Dimma
Hjörtur Guðmundsson Utangarðs?
Vera Ósk Valgarðsdóttir Hvítir veggir og Öskraðu gat á myrkrið
Aðgangur ókeypis. Allir hjartanlega velkomnir. Bjarmanes verður
með kakó, kaffi og smákökur til sölu.
27.11.2015
99 ára heiðurskona.
Jónína Guðrún Valdimarsdóttir frá Kárastöðum
á 99 ára afmæli 29. nóvember 2015.
Þessi aldna heiðurkona er mannasættir sem talar aldrei illa
um nokkurn mann þrátt fyrir oft erfiða æfi.
Lengi var hún ráðskona hjá bræðrunum Kára (d.11.12.1990) og
Sigurbirni Kristjánssonum (d.10.9.1989) á Kárastöðum og hélt þeim
heimili ásamt dóttur sinni.
Jónína eignaðist tvö börn, Svavar Bergmann Indriðason 1939,
sem lést 1.nóv. 2010, og Kristínu Ragnheiði Sigurðardóttur 1949,
sem var með móður sinni á Kárastöðum.
Jónína dvelur nú á Sæborg í góðu yfirlæti og eru henni færðar innilegar
hamingjuóskir með afmælið.
Myndina af Nínu tók Jón Jónsson árið 1990.