Fyrirlestur og opið hús hjá Textílsetrinu á Blönduósi

Í tilefni af haustnámskeiðum Textílseturs verður boðið upp á fyrirlestur sem opinn er áhugasömum ásamt því að opið hús verður í lok námskeiðs. Laugardaginn 24.október kl. 17.oo í matsal Kvennaskólans: Flækjur og fínerí – prjónamenning á vefnum. Ragnheiður Eiríksdóttir kennari í prjóni á haustnámskeiðunum, mun leiða gesti um prjónamenningu á veraldarvefnum, en þar er að finna ótæmandi hugmynda- og upplýsingabrunn fyrir prjónara. Opið hús þriðjudaginn 27.október kl. 16.oo – 17.00 í Kvennaskólanum: Haustnámskeiðum Textílseturs lýkur með opnu húsi þar sem áhugasömum gefst tækifæri til að skoða afrakstur námskeiðanna og spjalla við nemendur og kennara. Prjón, hekl, gimb og spuni er meðal viðfangsefna.

Sjúkrasjóður leitar eftir fjárstuðningi

Sjúkrasjóður Höfðakaupstaðar er 40 ára á þessu ári. Sjóðurinn hvetur nú almenning til að styrkja sjóðinn með fjárframlögum eða með því að kaupa minningarkort sem er aðaltekjulind hans.  Stofndagurinn miðast við staðfestinu á skipulagsskránni sem var 3. júlí 1969. Upphaflega var sjóðurinn stofnaður af félagskonum í Kvenfélaginu Einingu þann 24. júlí 1947.  Markmið sjóðsins var að beita sér fyrir og styrkja sjúkrahússbyggingu í Höfðakaupstað eins og bærinn var þá nefndur. Einnig mátti verja sjóðnum til annarra heilbrigðismála. Bygging sjúkrahúss, sem var grundvallarhugsjón þessara framsýnu kvenna, varð ekki að veruleika en mörg tæki til heilbrigðismála hafa verið keypt fyrir fjármagn úr sjóðnum. Árið 1953 var keypt stórt og vandað gegnumlýsingaræki og styrktu konur úr Skagahreppi þau kaup. Tækið var mikið í notkun meðan læknar sátu á Skagaströnd. Þá var einnig keypt sjúkrakarfa og Héraðshælið á Blönduósi veittur styrkur. Verkefni Sjúkrasjóðsins hafa verið mörg og mismunandi eins og eftirfarandi listi ber með sér: 1956 ljósabekkur sem staðsettur var í Barnaskólanum 1966 súrefnistæki 1972 skurðstofulampi 1975 hjartalínurit og súrefnistæki 1976 hitapottur með tilheyrandi púðum 1977 sæng, koddi ofl. 1981 stuttbylgjutæki,koddar, kodddaver 1984 mælingaborð fyrir ungbörn 1985 sjúkra- og nuddbekkir, trissa, dýnur ofl. 1988 lágtíðnitæki, stuttbylgjustóll, snúningsstóll, þurrkuvagn, miðtíðnitæki ofl. 1989 hljóðbylgjutæki 1992 tækjakaup í sjúkrabílinn 1994 þrekhjól, ábreiður, bakstrar 1997 tækjakaup fyrir Rauða krossdeildina á Skagaströnd 2001 nuddtæki 2002 vaxpottur til handaþjálfunar 2003 leysitæki sem nýtist við verkjameðhöndlun 2007 frystiskápur Mörg af þessum tækjum er t.d. mikið notuð af sjúkraþjálfara. Enn vantar mörg smá og stór tæki sem nauðsynleg þykja við umönnun og þjálfun sjúkra.  Sem fyrr segir eru fjárframlög til sjóðsins vel þegin.

Höfðaskóli 70 ára

Höfðaskóli er sjötíu ára á morgun, 17. október. Árið 1939 var komið á fót ,,fastaskóla” á Skagaströnd. Fyrsta skólaárið, 1939-1940, var kennt frá 17. október til 10. maí, alls 135 daga. Nemendur voru þá samtals 46 í 2 bekkjardeildum. Einn kennari starfaði við skólann, Páll Jónsson, og var hann jafnframt skólastjóri. Í tilefni af afmælinu verður sett ýmis konar efni inn á kapalkerfið um skólann sem núverandi nemendur hafa unnið. Einnig hafa nemendur tekið saman margvíslegt efni um Höfðaskóla og sett á vef hans.  Ætlunin er að efna til samkeppi um skólasöng og merki skólans. Nánari upplýsingar verður að finna á vef skólans.

Guðjón Guðjónsson spyr í kvöld

Guðjón Guðjónsson verður spyrill, dómari og alvaldur í umdeildustu spurningakeppni Skagastrandar, Drekktu betur, sem haldin verður í Kántrýbæ á föstudagskvöldið kl. 21:30. Hann er ekki bara þekktur sem sjómaður heldur er hann málafylgjumaður mikill og hefur rifið stólpakjaft við spyrla í Drekktu betur og því er kominn tími til að reyna á þolrifin í kallinum í brúnni. Guðjón segist koma vel undirbúinn til leiks. Hann harðneitar því að hafa flokkað spurningarnar eftir einhverjum þemum. Ætlar bara að spyrja um hitt og þetta; „...en ekkert þó um pólitík“, segir hann.„Allt annað fréttatengt, daglega lífið, landafræði, staðsetningar, bókmenntir og margt margt fleira.“ „Jú, ég verð gef kost á þremur eða fjórum möguleikum við nokkrar spurningar,“ segir Guðjón. „Svo ætla ég að vera með eina spurningu sem varðar Skagaströnd og ég veit að svarið verður afar umdeilt. Það er svona eins og að spyrja hvort rétt sé að sameina sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu.“

Fundur um hagleikssmiðjur fyrir handverksfólk

Handverksfólki á Norðurlandi vestra er boðið til fundar á Hótel Blönduósi, mánudagskvöldið 19. október kl. 20:00. Á fundinum mun Ari Þorsteinsson, verkefnisstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar á Nýheimum á Höfn, kynna verkefnið Hagleikssmiðjur, sem nánar má lesa um hér að neðan. Birna Kristjánsdóttir, sem nýlega tók við starfi sérfræðings í textílfræðum við Háskólasetrið á Blönduósi, mun segja frá starfi sínu og e. t. v. lauma einhverjum hugmyndum að fundargestum. Að þessu loknu er gert ráð fyrir að viðstaddir taki upp þráðinn frá handverksfundinum í Kvennaskólanum í vor, varðandi eflingu samstarfs handverksfólks á Norðurlandi vestra. Allir áhugasamir velkomnir. Hagleikssmiðjur Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Hornafirði er þáttakandi í alþjóðlegu samstarfsverkefni Economuseum Northern-Europe, ENE. Verkefnið gengur út á að yfirfæra kanadískt viðskiptalíkan fyrir handverksfyrirtæki (economuseum) hér eftir kallaðar Hagleikssmiðjur, til landa Norður-Evrópu. Þátttökulönd fyrir utan Ísland eru Noregur, Norður-Írland, Írland, Færeyjar og Kanada. Kanadísku samstarfsaðilarnir þróuðu viðskiptalíkanið og eru tilbúnir til að miðla okkur af þekkingu sinni en sameiginlega er farið yfir hvernig best verður staðið að þekkingaryfirfærslunni. Hagleikssmiðju- viðskiptalíkanið hefur verið í þróun undanfarin 20 ár og í dag eru starfandi 50 slík fyrirtæki á austurströnd Kanada, starfsmenn eru um 500 talsins, heildarvelta þessara fyrirtækja er um þrír miljarðar og árlega fá þessi fyrirtæki um 700.000 heimsóknir. Gert er ráð fyrir að ENE verkefnið taki þrjú ár og að í hverju þátttökulandi verði valin allavega tvö fyrirtæki til að þróa eftir viðskiptalíkaninu. Þau fyrirtæki sem hafa verið valin til þátttöku á Íslandi er hönnunar fyrirtækið Gusta Design á Djúpavogi sem framleiðir töskur og fylgihluti úr fiskroði og hreindýraskinnum ásamt fiskvinnslufyrirtækinu Bestfiskur á Hornafirði sem framleiðir m.a. sólþurrkaðan saltfisk. Verkefnið hefur fengið fjárhagslegan stuðning frá NORA Norræna Atlandsnefndinni og NPP Norðurslóðaáætlun Evrópusambandsins. Eins hafa alþjóðlegu Slow Food samtökin lýst yfir stuðningi við verkefnið. Íslenskur stuðningshópur fyrir verkefnið samanstendur af Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Hornafirði, Menningarmiðstöð Hornafjarðar, Þekkingarneti Austurlands, Handverk og Hönnun og Hönnunardeild Listaháskóla Íslands. Markmið með Hagleikssmiðjum er að varðveita hefðbundið handverk, mæta þörfum samtímans fyrir menningar-, fræðslu- og ferðaþjónustu-afurðir og gera eigendur fyrirtækjanna fjárhagslega sjálfstæða. Munurinn á Hagleikssmiðjum og öðrum handverksfyrirtækjum er að handverksfyrirtækin selja ákveðna vöru eða handverk á meðan Hagleikssmiðjan selur handverk, segir sögu þess, lýsir menningunni sem handverkið er sprottið úr og upplifuninni sem fylgir því að sjá vöruna verða til. Hagleikssmiðja er einkafyrirtæki sem notar hefðbundna tækni eða þekkingu við framleiðslu á afurðum sínum, kynnir þekkingu sína og handverksmenn fyrir viðskiptavinum, hefur aðstöðu til vinnslu, sýninga og kynninga á vörunni og síðast en ekki síst þarf sala á vörunni á að standa undir rekstri fyrirtækisins.

Ungbarnasund

Á föstudag, 16. október n.k., byrjar námskeið í ungbarnasundi á Blönduósi. Að þessu sinni verður kennt í sundlauginni á Heilbrigðisstofnunni, en hún er afar hlý og góð. Tímarnir verða á föstudögum og mánudögum, alls átta skipti. Skráning og nánari upplýsingar eru í síma 863 6037.

Gagn og gaman!

List- og verkgreinakennarar Húnavatnssýslna og aðrir áhugasamir voru boðaðir á fund þriðjudaginn 13. október í Grunnskóla Húnaþings vestra, Hvammstanga. Markmið fundarins var að ræða saman, skiptast á verkefnum, hugmyndum og kennsluaðferðum. Kennurunum var gert að koma með kennsluáætlanir, verkefni, bækur og önnur gögn sem tengjast greininni og reynst hafa vel í kennslunni. Allir höfðu margt fram að færa og jókst því hugmyndabanki kennaranna mikið. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Oddný Helga Sigurðadóttir, kennari. Námskeiðið var haldið á vegum Fræðsluskrifstofu A- Hún. Mynd: Þátttakendur og Leiðbeinandi.

Tónleikarnir verða á sunnudag

Ákveðið hefur verið að tónleikar hljómsveitarinnar Mannakorns verði nk. sunnudag kl 17.00 í Kántrýbæ Fólk er hvatt til að mæta og bent á forsölu aðgöngumiða skv. fyrri frétt og auglýsingum.

Tónleikum frestað

Tónleikum hljómsveitarinnar Mannakorns sem vera áttu í kvöld í Kántrýbæ er frestað vegna veðurs. Þótt veður á Skagaströnd sé enn skaplegt er ekki ferðaveður um landið og því er áður auglýstum tónleikum hljómsveitarinnar frestað. Rætt hefur verið um þann möguleika að tónleikarnir verði kl 17 á sunnudag en það er enn ófrágengið. Þegar fyrir liggur hvenær hljómsveitin heldur tónleika sína á Skagaströnd verður það auglýst m.a. á www.skagastrond.is

Frístundakort

Til foreldra grunnskólanema Sveitarstjórn Skagastrandar hefur samþykkt að bjóða frístundakort sem nemi allt að 15 þúsund króna styrk, fyrir hvert grunnskólabarn, sem þátt tekur í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Ákvörðun um frístundakort gildir frá 1. september2009 til 31. ágúst 2010. Frístundakortin ná til starfsemi íþróttafélaga auk hverskonar skipulagðs félags- og tómstundastarfs sem stendur í sex vikur eða lengur og greitt er fyrir með þátttökugjaldi. Þar að auki gildir kortið fyrir aðra tómstundaiðkun, s.s. tónlistar- og listnám. Síðasti greiðsludagur vegna tímabilsins er 15. september 2010“ Eftir að greitt hefur verið fyrir það námskeið eða starf sem börn eða unglingar taka þátt í er farið með afrit greiðsluseðils eða gilda kvittun á skrifstofu sveitarfélagsins þar sem fjárhæðin er endurgreidd, allt að 15 þús. kr. Skilyrði fyrir endurgreiðslu er að starfsemin sé viðurkennd af sveitarstjórn og um hana séu veittar allar þær upplýsingar sem óskað er eftir. Fyrir hönd sveitarstjórnar Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri