Metafli á land, 34% aukning

Landaður afli á Skagaströnd fyrstu fimm mánuði kvótaársins 2010-11 er tæplega 34% meiri en á sama tímabili síðasta kvótaárs. Þetta eru 6.510 tonn og hefur líklega aldrei áður borist jafn mikill afli á land í bænum. Aflinn það sem af er kvótaárinu er meiri en barst allt kvótaárið 2007-8 og aðeins um 21% minna en næsta kvótaár á eftir, 2008-9. Landaður afli í janúar á Skagaströnd var 336 tonn sem aðeins minna en í janúar á síðasta ári, en þá barst 353 tonn á land.  Aflahæstu bátar í janúar voru þessir: Sighvatur GK-57, 2 landanir, samtals 116 tonn. Fjölnir Su-57, 1 löndun, samtals 60,5 tonn Sóley Sigurjóns GK-200, 1 löndun, samtals 55,8 tonn Berglín GK-300, 1 löndun, samtals 51 tonn Alda HU-112, 7 landanir, samtals 28 tonn Sæfari SK-112, 7 landanir, 12 tonn Flugalda ST-54, 2 landanir, 11 tonn Kvótaárið miðast við upphaf september og lýkur í lok ágúst árið eftir. Meðfylgjandi er súlurit sem sýnir afla hvers kvótaárs. Bláu súlurnar sýna mánaðarlegan afla þess sem nú stendur yfir.

Aðalfundur Ungmennafélagsins Fram

Aðalfundur Ungmennafélagsins Fram verður haldinn í Höfðaskóla þriðjudaginn 22. febrúar klukkan 20.  Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf. Fundarboðendur vonast til að sjá sem flesta mæta.

Sunnudagssúpa

Sunnudaginn 13. febrúar býður Ungmennafélagið Fram til súpuveislu í fjáröflunarskyni í félagsheimilinu Fellsborg frá kl. 12 – 14.   Í boði verður matarmikil ungversk gúllassúpa og kakósúpa fyrir börnin.   Sýndar verða ljósmyndir frá starfi Umf. Fram, gamlar og nýjar myndir og ekki að efa að á þeim munu margir sjá einhverja sem þeir þekkja.  

112 dagurinn

Í dag föstudaginn 11. febrúar er 112 dagurinn. Af því tilefni ætlar björgunarsveitarbíllinn, slökkviliðsbíllinn og sjúkrabíllinn að vera við Samkaup Úrval á milli kl: 17:00 og 18:00.  Einnig verður Skagastrandardeild Rauða krossins með brúðu og býður gestum að blása og hnoða. Rauði krossinn hlakkar til að sjá sem flesta.

Listviðburður í kirkjunni á sunnudagskvöldið

Listviðburður á vegum Ness listamiðstöðvar verður í Hólaneskirkju sunnudagskvöldið 13. febrúar kl. 20. Höfundurinn er Aimée Xenou og er um að ræða dans- og tónlistargjörning. Nafnið er „Flutningur fjölskyldu í máli og mynd - fyrri hluti“ og helgast það af því að foreldrar listakonunnar og bróðir taka mikilvægan þátt í viðburðinum Aðrir listamenn sem taka þátt eru stúlkur sem lært hafa dans í vetur hjá Andreu Kasper og bróðirinn: Andrea Kasper, dansari og danshöfundur Sigurlaug Máney Hafliðadóttir, dansari Guðrún Anna Halldórsdóttir, dansari Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, dansari Björn Rothmüller, tónlistarmaður, orgelleikari Allir velkomnir - Viðburðurinn er ókeypis og tekur um 30 mínútur. Aimée þakkar öllum listamönnunum, samfélaginu á Skagaströnd, Hallbirni Björnssyni (Ice-Technology), stjórn Nes listamiðstöðvar, Ólafíu Lárusdóttur og Ursulu Árnadóttur fyrir áhuga þeirra og innlegg. 

58 konur í heilsuátakinu

Fyrsti tíminn í heilsuátaki kvenna á Skagaströnd var í gær. Slagorð átaksins er „Á réttri leið, bætt heilsa - betri líðan“. Mikill áhugi er fyrir námskeiðinu og mættu tæplega fimmtíu konur á undirbúningsfundinn og 58 tóku þátt í fyrsta tímanum í íþróttahúsinu. Vitað er um fleiri sem áhuga hafa á því að mæta og eru þær hvattar til að koma í næsta tíma. Leiðbeinendur eru Skagstrendingarnir; Andrea Kasper, Sigrún Líndal, Helga Aradóttir og Sigríður Stefánsdóttir. Tímarnir eru skiptast í pilates, stöðvaþjálfun, styrktaræfingar, jóga, zumba og þolfimi. Hvað þetta allt stendur fyrir kemur í ljós í tímunum. Námskeiði er klukkustund í hvert sinn og er kennt á þessum dögum: Þriðjudagar kl 18 - 19 Miðvikudagur kl. 18 - 19 Fimmtudagar kl. 17:30 til 18:30 Konur eru hvattar til að hafa eftirfarandi með í hvern tíma: Vatn Harndklæði Jógadýnu (ef hún er til) Þægileg föt í pilates og jóga Góða skó (þarf ekki skó í jóga og pilates)

Námskeið um kubba í leik- og grunnskólastarfi

Fræðsluskrifstofa Austur-Húnavatnssýslu stóð fyrir námskeiði í gamla kólahúsinu Bjarmanesi Skagaströnd mánudaginn 7. febrúar 2011. Viðfangsefni námskeiðsins var að kynna hvernig nýta má einingarkubba í leik- og grunnskólastarfi.  Fyrirlesarar voru: Guðlaug Grétarsdóttir og Lilja G. Ingólfsdóttir, leikskólakennarar leikskólans Barnabóls Skagaströnd. Einingakubba má nota fyrir alla aldurshópa nemenda í leik- og grunnskóla. Höfundur þeirra er Caroline Pratt. Hugmyndafræði Pratt hefur skírskotun í hugmyndafræði John Dewey.  Með einingakubbum má þjálfa: röðun og flokkun, hugtakaskilning, lögmál eðlisfræðinnar, þyngd, stöðugleika og jafnvægi. Einnig gagnast einingakubbar til að þjálfa gróf- og fínhreyfingar, samhæfingu handa og augna og  skapandi og sjálfstæða hugsun. Einingakubbarnir eru stærðfræðilega réttir, sem gerir börnunum kleift að læra hugtök stærðfræðinnar í leik.  Fræðileg og verkleg framsetning kennaranna féll í góðan jarðveg og þátttakendur lærðu mikið og höfðu gaman af á námskeiðinu.

Myndir frá þorrablótinu 2011

Þorrablót Kvenfélagsins Einingar var haldið síðasta laugardag. Mikil þátttaka var og lætur nærri að helmingur bæjarbúa hafi setið blótið. Veislustjóri var Lárus Ægir Guðmundsson og að venju hlífði hann fáum við óvenjulegu skopskyni sínu sem þó flestir kunnu vel að meta en síður þeir sem fyrir urðu ... eða þannig. Skemmiatriði voru að hætti heimamanna. Kom þar að margt grínfólk, flutti leikþætti, spilaði, söng og lék. Fjallað var um eftirminnilega atburði frá síðasta ári. Góður rómur var gerður að flutningnum og ljóst að þarna voru á ferð listamenn á heimsmælikvarða. Sannast það best á því að sumir gesta gerðu sér ekki grein fyrir að um væri að ræða leikin atriði. Maturinn var þótti afar góður og átu margir sér til óbóta en jöfnuðu það út með bragðgóðum drykkjum. Meðfylgjandi myndir tók Ólafía Lárusdóttir.

Sýning leikskólabarna í Landsbankanum

Árleg myndlistasýning leikskólabarna á Skagaströnd í Landsbankanum stendur nú yfir. Börnin komu í heimsókn í bankann síðasta þriðjudag og þá var listaverkunum komið fyrir. Líklega er um tíu ár síðan starfsmenn bankans bauð leikskólanum að koma og setja upp sýningu í tengslum við leikskóladaginn sem er 6. febrúar.  Meðfylgjandi myndir tók Signý Ósk Richter.

Heilsuátak kvenna á Skagaströnd

Kynningarfundurinn sem haldinn var í gær um heilsuátak fyrir konur á Skagaströnd tókst afskaplega vel. Um 40 konur mættu eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, og eru allar áhugasamar um framhaldið.  Nú er stefnt að því að koma á fjölbreyttri, og vonandi skemmtilegri, tíu vikna dagskrá. Markmiðið með er að byggja upp bæði líkama og sál. Boðið verður upp á  alhliða hreyfingu, svo sem jóga, pilates, þolfimi og dans. Einnig verður rætt um aðhald í mat fyrir þær sem vilja og svo er ætlunin að bjóða upp á fyrirlestra, matarkvöld og skemmtikvöld.  Mikil og góð stemning myndaðist á fundinum og nú er stefnt að því að byrja þriðjudaginn 8. febrúar.  Nánari upplýsingar og skráning er hjá Sigríði Stefáns í síma: 820 2644.