25.08.2008			
	
	FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar
miðvikudaginn 27. ágúst 2008 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800.
Dagskrá:
1.       Kjör oddvita og varaoddvita
2.       Kosning í nefndir:
a)        Búfjáreftirlits- og fjallskilanefnd
b)        Gróðurverndarnefnd (sbr. tilnefningu BHS)
c)         Fulltrúa á ársþing SSNV
3.       Byggðasamlag um tónlistarskóla
a)    Fundir stjórnar
b)   Drög að reglugerð tónlistarskólans
c)    Fjárhagsáætlun 1.07. - 31.12.2008
4.       Samningur um skólamáltíðir
5.       Styrktarsjóður EBÍ - umsókn.
6.       Erindi MX – klúbbs Skagastrandar
7.       Bréf:
d)   Marian Bijlenga, dags. 8. ágúst
e)    Kristínar Birnu Guðmundsdóttur, dags. 8. ágúst 2008.
f)     Eldstoða ehf. dags. 11. júlí 2008.
g)    Bjarna Ó. Haraldssonar, dags. 17. júní 2008.
h)   Menntamálaráðherra, dags. 3. júní 2008.
i)     Heilbrigðiseftirlits, dags. 30. maí 2008.
j)     Samkórsins Bjarkar, dags. 4. júní 2008.
k)   Búa Þórs Birgissonar, dags. 10. júní 2008.
8.       Fundargerðir
a)        Hafnarnefndar, 6. júní 2008.
b)       Fræðslunefndar, 12. júní 2008.
c)        Tómstunda- og menningarmálanefndar, 29. júlí 2008.
d)       Tómstunda- og menningarmálanefndar, 13. ágúst 2008.
e)        Stjórnar Norðurár bs. 31. júlí 2008.
f) Stjórnar Félags- og skólaþjónustu A-Hún 15. júlí 2008.
g)        Stjórnar Byggðasamlags um menningar- og atvinnumál
9.       Önnur mál
 
					
		
		
		
			
					25.08.2008			
	
	Góð mæting var á Kaupþings golfmótinu á laugardag. Þátttakendur voru 40 og léku þeir
18 holur í blíðskapar veðri á golfvellinum á Háagerði. Mótið var jafnframt minningarmót um Karl Berndsen sem lést árið 1995. Hann var mikill áhugamaður um golfíþróttina og vann mikið og gott starf fyrir Golfklúbb Skagastrandar.
Helstu úrslit urðu sem hér segir:
Kvennaflokkur án forgjafar:
1.      Árný L.Árnadóttir Golfkl.Sauðárkróks                91 högg.
2.      Dagný M.Sigmarsdóttir Golfkl.Skagastrandar   101 högg.
3.      Ingibjörg Ó.Guðjónsdóttir Golfkl.Sauðárkróks 103 högg.
Karlaflokkur án forgjafar:
1. Bergur R.Björnsson Golfkl.Ólafsfjarðar               69 högg.
2. Fylkir Þ.Guðmundssson Golfkl.Ólafsfjarðar        80 högg.
3. Rafn Ingi Rafnsson Golfkl.Sauðárkróks              83 högg.
Punktakeppni:
1.      Bergur R. Björnsson Golfkl.Ólafsfjarðar                       42 punktar.
2.      Adolf H. Berndsen Golfkl.Skagastrandar                      37 punktar.
3.      Dagný M. Sigmarsdóttir Golfkl.Skagastrandar    34 punktar.
Mótið var einnig þriðja og síðasta mótið í svokallaðri Norðvesturþrennu sem er samstarfs verkefni golfklúbbanna á Blönduósi, Sauðárkrók og Skagaströnd. Keppt var um besta samanlagða árangur í karla og kvennaflokki. Sigurvegari í kvennaflokki var
Árný L.Árnadóttir Golfkl.Sauðárkróks en í karlaflokki sigraði Sævar Steingrímsson Golfkl.Akureyrar.
 
					
		
		
			
					21.08.2008			
	
	Opna Kaupþings/Minningarmótið um Karl Berndsen fer fram á Háagerðisvelli við Skagaströnd laugardaginn 23. ágúst. Leikinn er höggleikur án forgjafar í karla og kvennaflokki og punktakeppni í einum flokki. Mótsgjald er kr. 3.000 en unglingar 14 ára og yngri kr. 1.500. Skráning er í fullum gangi á netinu á http://www.golf.is/pages/forsida1/motaskra/upplysingarummot/?idegaweb_event_classname=e34b3d46-4509-406f-9616-530b7975fb41&tournament_id=10117.
Frétt af www.huni.is
 
					
		
		
		
			
					20.08.2008			
	
	Námskeið um grenndarfræði, umhverfi og menningu var haldið á vegum Fræðsluskrifstofunnar þann 15. ágúst s.l. í félagsheimilinu á Hvammstanga.
Fyrirlesarinn Bragi Guðmundsson, prófessor útskýrð með áhugaverðum dæmum að staðarmenning hvers skólasvæðis leggur skólunum takmarkalítil tækifæri í hendur til að auka fjölbreytni í viðfangsefnum í öllum námsgreinum fyrir alla aldurshópa.
Námskeiðið sóttu 60 kennarar grunn- og leikskóla Húnavatnssýslna og grunnskólans á Borðeyri.
Þátttakendur lýstu mikilli ánægju með daginn.
Myndir: Þátttakendur og  Leiðbeinandi.
 
					
		
		
			
					19.08.2008			
	
	Föstudaginn 15.ágúst fór Ari H.Einarsson GÓS holu í höggi á braut 1 á Háagerðisvelli á Skagaströnd. Þetta er í annað skipti sem þetta gerist í sögu Golfklúbbs Skagastrandar, en á síðasta ári fór Frímann Guðbrandsson GSS holu í höggi á braut 7.
Ari er því orðinn félagi í Einherjaklúbbnum sem er klúbbur þeirra sem afrekað hafa að fara holu í höggi á golfvöllum landsins. Ari sem varð sjötugur á árinu fékk því sönnun þess að allt er sjötugum fært í þessari skemmtilegu íþrótt.
 
					
		
		
		
			
					19.08.2008			
	
	„Tómstunda- og menningarmálanefnd Skagastrandar er það mikil ánægja að veita Soffíu S. Lárusdóttur viðurkenningu fyrir að hafa átt frumkvæði að samstöðu meðal íbúa við að gera Skagaströnd skrautlegri og skemmtilegri um Kántrýdaga.
Fyrir það ber að þakka.“
Svo segir á viðurkenningarskjali sem Jensína Lýðsdóttir, formaður nefndarinnar, afhenti Soffíu á laugardagskvöldi Kántrýdaga.
Við afhendinguna sagði Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri, að skreytingar í bænum væru heillandi og afar skemmtilegar. Í byrjun áttu margir það til að skreyta garða sína en það þurfti einhvern til að hvetja menn til dáða, að taka höndum saman og vinna markvisst að skreytingum gatna. Soffía átti þetta frumkvæði. Hún tók upp símann, hringdi í nágranna sína, safnaði þeim saman og fyrir vikið var heil gata skreytt. Þetta barst út og íbúar í öðrum götum ákváðu að skreyta nágrenni sitt. Og nú er bærinn er allur skreyttur, öllum til gleði og ánægju.
 
					
		
		
		
			
					18.08.2008			
	
	Magnús V. Guðlaugsson ljósmyndari færði fyrir helgi Sveitarfélaginu Skagaströnd listaverk að gjöf. Um er að ræða stóra mynd sem samsett er úr fjölda ljósmynda sem Magnús hefur tekið af görðum í bænum.
Listaverkið afhenti Magnús við opnun málverkasýningar Halldórs Árna Sveinssonar í Kælinum í Nes-Listamiðstöðinni við upphaf Kántrýdaga.
Adolf H. Berndsen tók við gjöfinni fyrir hönd sveitarfélagsins og færði hann listamönnunum að gjöf bókina Byggðin undir borginni.
Þess má geta að Magnús er fæddur á Skagaströnd og ólst þar upp til sextán ára aldurs.
Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri, Adolf, Halldór og Magnús og í baksýn hangir listaverk Magnúsar á vegg.
 
					
		
		
			
					18.08.2008			
	
	Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur ákveðið að umsóknarfrestur um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2007/2008 skuli framlengdur fyrir neðangreind byggðarlög. Athuga ber að umsóknarfrestur er til og með 1. september 2008, og vakin er athygli á að áður sendar umsóknir gilda áfram. Sveitarfélagið Árborg (Eyrarbakki) Sveitarfélagið Ölfus (Þorlákshöfn) Sveitarfélagið Gerðahreppur (Garður) Snæfellsbær (Rif og Ólafsvík) Grundarfjarðarbær (Grundarfjörður) Stykkishólmsbær (Stykkishólmur) Sveitarfélagið Vesturbyggð (Brjánslækur, Patreksfjörður, Bíldudalur) Tálknafjarðarhreppur Sveitarfélagið Bolungarvík Sveitarfélagið Ísafjarðarðarbær (Þingeyri, Flateyri, Suðureyri, Hnífsdalur, Ísafjörður) Árneshreppur (Norðurfjörður) Kaldrananeshreppur (Drangsnes) Húnaþing vestra (Hvammstangi) Blönduósbær (Blönduós) Sveitarfélagið Höfðahreppur (Skagaströnd) Sveitarfélagið Fjallabyggð (Siglufjörður, Ólafsfjörður) Grímseyjarhreppur (Grímsey) Dalvíkurbyggð (Hauganes og Árskógssandur) Akureyrarbær (Hrísey) Langanesbyggð (Þórshöfn og Bakkafjörður) Borgarfjarðarhreppur (Borgarfjörður eystri) Seyðisfjörður, Fjarðabyggð (Fáskrúðsfjörður og Stöðvarfjörður) Sveitarfélagið Djúpavogshreppur Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði sem er að finna hér.
 
					
		
		
			
					15.08.2008			
	
	ATH. Breyttur opnunartími sundlaugar um Kántrýdaga
Föstudag 15.ágúst kl. 13:00 – 19:00
Laugardag 16.ágúst kl. 11:00 – 15:00
Sunnudag 17.ágúst  kl. 11:00 – 15:00
Ekki er hleypt ofaní laugina hálftíma fyrir lokun.
 
					
		
		
			
					14.08.2008			
	
	Ágætu Skagstrendingar
Við gerum okkur dagamun um næstu helgi á fjölskylduhátíðinni Kántrýdögum.
 
Hátíðin er að verða hefðbundin í dagskrá en auðvitað eru alltaf einhverjar breytingar og vonandi nýmæli.
 
Skemmtileg nýjung eru listasýningar sem allir eru hvattir til að skoða. Við höfum auðvitað miklar væntingar til að „Buskaranámskeiðið“ lífgi mikið upp á Kántrýdagana.
 
Núna verður opnað leikhús í Smábæ á Kofavöllum því brúðubíllinn verður með sýningu þar sem hefst kl 18, föstudaginn 15. ágúst. Sýnd verða tvö leikrit. Annað fjallar um fyrstu víkingana sem komu til Íslands. Hitt heitir heitir Pylsusalinn og er um hann Kobba sem ætlar að fá sér pylsu en það gengur heldur brösulega.
Sem fyrr er markmið hátíðarinnar fyrst og fremst að skapa góða stemningu í bænum og að við  gerum okkur dagamun á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Það þarf ekki að nefna skreytingar því þær hafa verið svo ótrúlega skemmtilegar og hugmyndaauðgin mikil.
 
Við væntum þess að allir taki þátt í dagskrá hátíðarinnar og verði í léttu hátíðarskapi.
 
Tómstunda- og menningarmálanefnd