15.05.2003
Ágúst Þór Bragason, umhverfisstjóri lagði fyrstu hellurnar í
planið við kirkjuna miðvikudaginn 14. maí. Hellurnar eru
svokallaðir óðalssteinar, 8 cm þykkar. Reiknað er með að
alls verði lagðar hellur sem nema um 160 tonnum í
kirkjutorgið og stefnt að því að ljúka mestum hluta þess fyrir
mánaðarmótin. Sjómannadagurinn verður haldin hátíðlegur 1.
júní og fermt verður í kirkjunni 31. maí.
14.05.2003
Hressar konur og karlar alls 30 talsins ákváðu að halda upp á
kosningadaginn 10. maí, á fremur óvenjulegan hátt, með því
að ganga frá Skagaströnd til Blönduóss. Þetta er í annað
sinn sem aðstandendur námskeiðsins "Líkama og sál"
standa fyrir þessari göngu og vonandi verður þessi sólarganga
að hefð hjá íbúum svæðisins. Gengnir voru 23 kílómetrar og
tók gangan u.þ.b. 4 klukkustundir og 40 mínútur. Það var
þreyttur en ákfalega stoltur hópur sem þáði veitingar af
Framsóknarmönnum á Blönduósi að lokinni göngu.
13.05.2003
Skagaströnd, 13. maí 2003
Menntun í heimabyggð
Skagstrendingar!
Hreppsnefnd Höfðahrepps vill með bréfi þessu hvetja alla sem
hug hafa á framhaldsnámi að kynna sér möguleika fjarnáms.
Margir skólar bjóða upp á fjarnám og er möguleikarnir
fjölbreyttir bæði á framhalds- og háskólastigi. Sem dæmi um
skóla sem bjóða upp á skipulagt fjarnám eru:
• Verkmenntaskólinn á Akureyri
• Fjölbrautarskólinn í Ármúla
• Háskólinn á Akureyri
• Háskólinn í Reykjavík
• Háskólinn á Bifröst
• Kennaraháskólinn
Hreppsnefnd Höfðahrepps hefur ákveðið að koma upp
aðstöðu fyrir fjarnám og ráða starfsmann sem hefur það
hlutverk að aðstoða nemendur og halda utan um starfsemina.
Gert er ráð fyrir að “námsstofan” taki til starfa næsta haust.
Tilgangurinn er að hvetja íbúa Skagastrandar til náms og
athafna. Jafnframt er markmiðið að leitast við að styðja við
bakið á þeim sem stunda nám og skapa þeim
þægilegt “skólaumhverfi”.
Fyrirhugað er að námsstofan verði í Gamla skólanum þegar
fram líða stundir, en gert er ráð fyrir að til að byrja með verði
aðstaðan til húsa að Mánabraut 3. Þar verður til staðar allur
búnaður sem þarf til að stunda fjarnám.
Sveitarstjóri.
12.05.2003
Togarinn Örvar kom til hafnar á Skagaströnd föstudaginn 9.
maí. Afli skipsins er um 323 tonn og áætlað verðmæti hans
um 75 milljónir. Meginhluti aflans er grálúða.
07.05.2003
Undirbúningur hellulagnar á bílastæði austan kirkjunnar
gengur vel. Jarðvegsskiptum er að mestu lokið og búið að
taka stæði fyrir minnisvarðann syðst í planinu. Starfsmenn
voru að taka hæðir, þjappa fyllingu og undirbúa uppsetningu
fjögurra ljósastaura í blíðunni þriðjudaginn 6. maí.
10.04.2003
Talsverðar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á vegum
Höfðahrepps á árinu og er áætlaður kostnaður við þær er um
25 milljónir króna.
Frágangur á kirkjulóð er stærsta einstaka framkvæmd
ársins. Ákveðið hefur verið að helluleggja bílastæði ofan við
kirkjuna og þarf samhliða því að koma minnismerki um
drukknaða sjómenn fyrir innar í lóðinni og útbúa hellulagt torg
í kringum það. Skipulag svæðisins liggur frammi á skrifstofu
hreppsins og eru íbúar hvattir til þess að kynna sér það.
Framkvæmdir hefjast seinni hluta aprílmánaðar og er stefnt
að því að ljúka þeim að mestu fyrir mánaðarmótin maí/júní.
Áætlaður kostnaður við framkvæmdina er um 7,5 milljónir
króna.
Lagfæra á gangstéttir á nokkrum stöðum þar sem þær hafa
skemmst og framlengja gangstéttir á nokkrum stöðum.
Settir verða ljósastaurar við Höfðastrætið. Kostnaður við
þessar framkvæmdir er áætlaður um 3,0 milljónir króna.
Ljúka á við utanhússlagfæringar á Bjarmanesi og færa húsið
nær upprunalegu útliti. Þannig verður skýlið fjarlægt og
komið fyrir gluggum þar sem þeir voru áður. Segja má með
þessu að húsinu sé sýndur einstakur sómi enda er það eitt
elsta húsið í sveitarfélaginu. Áætlaður kostnaður á árinu er
um 5,0 milljónir króna en heildarkostnaður við að endurgera
húsið er áætlaður um 18 milljónir.
Ákveðið hefur verið að ráðast í utanhússmálun á stórum hluta
af íbúðum sveitarfélagsins. Um er að ræða raðhúsin við
Suðurveg, raðhús við Mánabraut og parhús við Skagaveg.
Áætlaður kostnaður er um 4,0 milljónir.
Á vegum vatnsveitunnar verða endurnýjaðir 2. brunahanar og
komið upp viðvörunarkerfi og eftirlitskerfi ef um bilanir er að
ræða í dælingu eða miðlun á vatninu. Áætlaður kostnaður er
um 0,5 milljónir.
Gengið verður frá Fjörubrautinni frá gatnamótum Hólanesvegar
að Hólaneshúsunum. Um er að ræða jarðvegsskipti, lagnir
og klæðningu á götu. Sjóvörn sunnan við Hólanes verður
styrkt á 200 m kafla og færð fjær götunni. Áætlaður
kostnaður við sjóvörnina er 3,5 milljónir kr.
Auk áðurtaldra verkefna verður unnið að minniháttar
viðgerðum og viðhaldi.
21.03.2003
Ágúst Þór Bragason hefur verið ráðinn sem umhverfisstjóri og
yfirmaður tæknideildar Höfðahrepps. Ágúst Þór hefur
undanfarin ár starfað hjá Blönduósbæ og hefur því góða
reynslu af verklegum framkvæmdum sveitarfélaga og þekkir
ágætlega til sveitarstjórnarmála sem starfandi bæjarfulltrúi á
Blönduósi. Hann hefur undanfarin ár veitt íbúum á
Skagaströnd ýmsa þjónustu við gróður og garða og er öllum
hnútum kunnugur í því efni. Hann mun hefja störf í byrjun apríl
n.k.
17.03.2003
Kántrýdanshópurinn Hófarnir hlaut gullverðlaun á bikarmóti í
línudönsum um helgina. Sjá mynd undir flipanum Kántrý.
13.03.2003
Laugardaginn 15. mars mun kántrýdansahópurinn Hófarnir
fara til Reykjavíkur til að keppa í bikarmóti línudansara.
Keppnin verður haldin í Laugardalshöll og hefst upp úr
kl 13:00. Kvöldið áður ætlar hópurinn að dansa, sér og öðrum
til skemmtunar, í þættinum " Djúpa laugin" á Skjá einum.