13.08.2003
Brúðubíllinn var á ferðinni á Skagaströnd í gær og kom sér
fyrir á Hnappstaðatúni eftir hádegið í blíðskaparveðri. Margir
sóttu sýninguna sem var í boði Höfðahrepps. Eins og sjá má
á meðfylgjandi myndum skín áhugi og einbeiting úr hverju
andliti og vissara að vera við öllu búin þegar Blárefurinn
ógnvænlegi fer á kreik.
05.08.2003
Kántrýtónleikarnir á laugardagskvöldið tókust einstaklega vel.
Þeir hófust með því að hljómsveitin The Hefners sté á svið og
lék létta diskósmelli. Hljómsveitarmeðlimir voru uppábúnir í
stíl fyrri tíma, með hárkollur og lituð andlit. Þeir voru hressir
og skemmtilegir og tónlist þeirra lífleg.
Næstir á svið voru KK og Magnús Eiríks sem léku m.a. lög af
metsöludiski sínum 22 ferðalög. Áhorfendur sem voru á bilinu
1000-1500 kunnu vel að meta skemmtilegan flutning þeirra
félaga og tóku undir sönginn, fullum hálsi.
Hljómsveitin BSG sem skipuð er þeim Björgvin Halldórssyni,
Sigríði Beinteinsdóttur, Grétari Örvarssyni og Kristjáni
Grétarssyni tók næstu syrpu þar voru á ferð atvinnumenn sem
kunnu sitt fag og enn magnaðist frábær stemming við
kraftmikinn tónlistarflutning þeirra.
Næstur á pall var kántrýkóngurinn sjálfur Hallbjörn Hjartarson.
Hann brást ekki aðdáendum sínum fremur enn fyrri daginn og
renndi sér í gegnum sína þekktu kántrýslagara við undirleik
BSG manna.
Hljómsveitin Brimkló tók svo lokahnykk á tónleikana og óhætt
að segja að það hafi verið hnykkur sem um munaði.
Tónlist þeirra félaga var hreint út sagt frábær.
Hafi einhver komið með hálfum hug yfir því að þarna yrðu
einungis fluttar útjaskaðar dægurflugur af hálfryðguðum
poppurum, þá fékk sá hinn sami heldur betur aðra afgreiðslu.
Gömlu góðu dægurflugurnar voru keyrða út af rafmögnuðum
krafti og greinilegt að þeir sem að því stóðu voru hvergi
ryðgaðir í fræðunum. Hljómsveitin sem núna er skipuð þeim
Björgvin Halldórssyni, Arnari Sigurbjörnssyni, Haraldi
Þorsteinssyni, Guðmundi Benediktssyni, Magnúsi
Einarssyni, Þóri Baldurssyni og Ragnari Sigurjónssyni var
gífurlega þétt og skemmtileg. Áhorfendur skemmtu sér hið
besta og bæði sungu og tóku línudansaspor á túninu fyrir
framan sviðið.
Þótt margir ágætir listamenn hafi komið fram á
kántrýhátiðum á Skagaströnd undanfarin ár er ekki á neinn
hallað þótt fullyrt sé að þessir tónleikar hafi í heild verið besta
dagskráratriði sem setti hafi verið á svið á þeim hátíðunum.
Á sunnudeginum var hin hefðbundna gospelmessa. Séra
Magnús Magnússon messaði og kór Hólaneskirkju söng
gospellög undir stjórn og undirleik Óskars Einarssonar.
Einsögnvarar í messunni voru: Björgvin Halldórsson, Sigríður
Beinteinsdóttir, Fannar Viggósson og Hugrún Sif
Hallgrímsdóttir. Messan var að vanda létt og skemmtileg og
tónlistarflutnigur allur eins og best verður á kosið.
01.08.2003
Uppsetning tækja og búnaðar vegna Kántrýtónleika er á
lokastigi. Leiktæki frá Hopp og skopp verða sett upp á
svæðinu og nokkur söluborð. Helsta nýmæli í búnaði fyrir
helgina er myndaspjald sem Kjartan Keen hefur málað. Þar
er um að ræða stóra málaða mynd af kúreka á hesti. Myndin
hefur þann ágæta eiginleika að hægt er að stinga andlitinu út
í gegnum gat á myndinni og ljá kúrekanum sitt eigið andlit.
25.07.2003
Góður afli hefur verið hjá krókabátum gerðir eru út frá
Skagaströnd að undanförnu. Gæftir hafa verið góðar og
aflabrögð með ágætum. Vikuna 18.-25. júli var landað 235
tonnum úr 51 bát. Þeim bátum sem stunda veiðarnar frá
Skagaströnd hefur farið fjölgandi og föstudaginn 25. júlí
töldust þeir vera 58 en þá var bræla og allir bátar í höfn.
24.07.2003
Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar tók í notkun nýjan sorpbíl
fimmtudaginn 24. júlí sl. Bíllinn sem er af gerðinni Volvo FM
9 er sambærilegur við eldri bíl sem er frá árinu 1994 en búin
ýmsum nýjum búnaði, m.a. er tölvuvog til að magntaka og
tvær myndavélar til að fylgjast með því sem gerist aftan við
bílinn. Sorphreinsun VH hefur annast gámaþjónustu og
sorphreinsun í Austur Húnavatnssýslu sl. 13 ár.
24.07.2003
Togarinn Arnar HU 1 er á leið til heimahafnar úr Barentshafi
með góðan afla. Veiðarnar gengu með afbrigðum vel og afli
var reyndar svo góður að það var eingöngu hraði á vinnslunni
sem stýrði því hve mikill afli var tekinn á hverjum sólarhring.
Upphaflega var áætlað að togarinn kæmi til heimahafnar í
ágústmánuði og túrinn gæti tekið um 40 daga. Þessi góðu
aflabrögð hafa hins vegar leitt til þess að Arnar HU verður
einungis 22 daga í túrnum þrátt fyrir rúmlega fjögurra daga
siglingu hvora leið á miðin. Það tók því ekki nema um 13
sólarhringa að veiða 720 tonna kvóta sem skipið hafði í
Barentshafi. Veiðin var því um 33 tonn á úthaldsdag en var í
raun rúmlega 55 tonn á þá daga sem skipið var að veiðum.
Aflaverðmæti skipsins er áætlað um 117 milljónir króna.
24.07.2003
Mánudaginn 16. júní 2003 var haldinn borgarfundur í
félagsheimilinu Fellsborg. Á fundinn mætti hreppsnefnd
Höfðahrepps auk uþb. 60 íbúa á Skagaströnd.
Á fundinum voru kynntar helstu niðurstöður í fjárhagsáætlun
2003 og ársreikning 2002. Á fundinum voru rædd ýmis
hagsmuna- og áhugamál íbúa og sveitarfélags. Fundurinn var
líflegur og umræðan málefnaleg þótt mörg mál væru til
umræðu.
24.07.2003
Undirbúningur kántrýtónleika um verslunarmannahelgina
ganga vel. Útipallur fyrir tónleikana og messuna var að taka á
sig mynd í góðviðrinu á miðvikudag. Annar undirbúningur
gengur einnig eftir áætlun og starfsmenn sveitarfélagsins
leggja áherslu á að snyrta og lagfæra opin svæði og hafa allt í
góðu lagi fyrir væntanlega gesti.
21.07.2003
Undanfarnar vikur hefur verið mikil umferð um
Skagastrandarhöfn. Aflabrögð hjá handfæra og línubátum
hafa verið ágæt og 30-40 bátar sem stunda veiðarnar.
Togararnir Arnar og Örvar lönduðu góðum afla um síðustu
mánaðarmót og rækjuflutningaskipin Ludvik Andersen og
Green Arctic hafa flutt farma af rækju til vinnslunnar.
Brotajárnsflutningaskipið Anja Funk kom til að flytja járn til
endurvinnslu fyrir Hringrás hf.
20.07.2003
Nokkur ungmenni sem hafa í vor og sumar unnið í
myndlistaklúbbi á vegum félagsmiðstöðvarinnar á
Skagaströnd opnuðu sýningu á verkum sínum sunnudaginn
20. júlí sl. í gamla Kaupfélagshúsinu. Alls sýna 12 ungmenni
verk sín á og kalla sýninguna "KISA KISA, mjá, mjá - ÓJÁ".
Verkin á sýningunni eru unnin með mismunandi tækni og
myndefnið fjölbreytt. Leiðbeinandi og helsti hvatamaður að
sýningunni er Davíð Örn Halldórsson sem hefur haft umsjón
með unglingastarfi sl. vetur.
Sýningin verður opin mánudaginn 21. júlí og þriðjudaginn 22.
júlí kl. 19,00 - 22,00