Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar þriðjudaginn 13. maí 2008 á skrifstofu hreppsins kl 800. Dagskrá: 1. Samstarf sveitarfélaga í A-Hún 2. Ársreikningur 2007. 3. Bréf: a) Óbyggðanefndar, dags. 23. apríl 2008. b) Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis, dags. 16. apríl 2008. c) Stéttarfélagsins Samstöðu, dags. 28. apríl 2008. d) Knattspyrnudeild Hvatar, 25. apríl 2008. e) Iceland Photo Agency –IPA, dags. 11. apríl 2008. f) Félags- og tryggingamálaráðuneytis, dags. 11. apríl 2008. g) Félags- og tryggingamálaráðuneytis, dags. 2. maí 2008. 4. Fundargerðir a) Tómstunda- og menningarmálanefndar, 15. apríl 2008. b) Stjórnar Sambands ísl. sv.fél. 25. apríl 2008. 5. Önnur mál Sveitarstjóri

Frá Tónlistarskólanum!

Skólaslit og afhending prófskírteina fer fram í Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 24. maí n.k. kl:1400 Fram koma nemendur sem hafa lokið stigsprófum og nemendur 10. bekkja sem kveðja skólann. Allir velkomnir. Innritun fyrir næsta skólaár fer fram dagana 19.-21. maí n.k. á Blönduósi og Skagaströnd frá kl: 16-18 alla dagana. Á Húnavöllum verður innritað föstudaginn 30.maí við skólaslit Húnavallaskóla. Skólastjóri

Breyttur fundartími íbúafundar

Breyttur fundartími íbúafundar Af óviðráðanlegum ástæðum hefur fundartíma íbúafundar sem auglýstur var sl mánudag um aðalskipulag verið breytt. ÍBÚAFUNDUR um aðalskipulag fyrir sveitarfélagið Skagaströnd verður haldinn í félagsheimilinu Fellsborg miðvikudaginn 7. maí n.k. kl 17:00 Magnús B. Jónsson, sveitarstjóri

Undirbúningur sjómannadagshátíðarhalda

Björgunarsveitin Strönd leitar eftir fólki til að taka þátt í undirbúningi og vinnu á sjómannadagsskemmtuninni sem fram fer 31. maí 2008. Áhugasamir aðilar eru hvattir til að gefa sig fram hjá fulltrúum björgunarsveitarinnar. Einnig er hægt að hafa samband við s. 894 4006. Stöndum öll saman um að gera góð hátíðarhöld á sjómannadaginn enn betri. Reynir og Bjarni.

Umsvif í Kántrýbæ

Laugardagskvöldið 3. maí verður dúndrandi stuð í Kántrýbæ því þá mun hljómsveitin UMSVIF halda uppi fjörinu og leika fyrir dansi frá kl 23. Meiri umsvif, meira fjör í Kántrýbæ. www.umsvif.com

íbúafundur um aðalskipulag

ÍBÚAFUNDUR um aðalskipulag fyrir sveitarfélagið Skagaströnd verður haldinn í félagsheimilinu Fellsborg miðvikudagskvöldið 7. maí n.k. kl 19:30 Hafin er vinna við gerð aðalskipulags fyrir sveitarfélagið Skagaströnd. Í þeim tilgangi að gefa íbúum og hagsmunaaðilum kost á að koma á framfæri ábendingum í upphafi vinnunar er boðað til almenns íbúafundar. Samið hefur verið við Landmótun sf. um ráðgjöf um aðalskipulagsgerðina og mun Yngvi Þór Loftson ráðgjafi mæta á fundinn, kynna verkefnið og m.a. greina frá aðgangi almennings að aðalskipulagsgerðinni. Aðalskipulag nær til alls land innan staðarmarka sveitarfélagsins og er stefna sveitarstjórnar um: · Atvinnu- og íbúamál · Landnotkun og þróun byggðar · Samgöngur og veitur · Umhverfismál · Þéttleika byggðar og byggðamynstur · Takmarkanir á landnotkun Stefnumörkun aðalskipulagsins skal ná til a.m.k. 12 ára tímabils. Íbúar og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á það samfélag sem þeir búa í. Magnús B. Jónsson sveitarstjóri

Þáttur upplýsingavers í skólastarfi

Námskeið um þátt upplýsingavers í skólastarfi var haldið á vegum Fræðsluskrifstofunnar þriðjudaginn 29. apríl s.l. í Fellsborg á Skagaströnd. Á námskeiðinu kynntu kennararnir Fríða S. Haraldsdóttir og Margrét Sólmundsdóttir starf sitt í Laugalækjarskóla en þær hafa búið til afar spennandi verkefni með öðrum kennurum skólans. Verkefnin eru byggð upp á fjölbreyttri notkun upplýsingatækni og hafa skilað góðum árangri og nemendur jafnframt verið mjög ánægðir. Eru þessi verkefni meðal annars notuð í 10. bekk eftir að samræmdum prófum lýkur á vorin. Sýndu þær þátttakendum fjölmörg sýnishorn af vinnu nemenda þeirra og vöktu þau verðskuldaða athygli. Guðjón Ólafsson, fræðslustjóri

Óskað eftir myndum af Spákonufellshöfða

Verið er að undirbúa útgáfu á bæklingi um gönguleiðir á Spákonufellshöfða sem kemur út fyrir lok maí. Leitað er eftir góðum litmyndum sem teknar eru af Höfðanum eða á honum. Ekki er endilega sóst eftir útsýnismyndum yfir bæinn heldur allt eins af einstökum stöðum, fólki á göngu, í sólbaði eða að leik eða einhverjum sérstökum atburðum sem eru áhugaverðir. Myndirnar mega vera á slides, pappír eða teknar á digital myndavél. Óskað er eftir viðbrögðum fyrir 5. maí nk. en eftir þann tíma fer myndefni í úrvinnslu. Vinsamlegast hafið samband við Sigurð markaðsráðgjafa Skagastrandar í síma 864 9010. Hann hefur skrifstofur í Bjarmanesi og þar má hitta hann á skrifstofutíma.

Hnísukálfurinn Sævar fer í leikskóla

Starfsmenn Sjávarlíftæknisetursins BioPol á Skagaströnd heímsóttu leikskólann Barnaból í morgun. Þau höfðu meðferðis kálf sem hafði komið úr hnísu sem veiddist í grásleppunet við rannsóknarveiðar BioPol við Málmeyjarfjörð. Hnísan var 161 cm á lengd og 79 kg og reyndist semsagt vera kálfafull. Kálfurinn var karlkyns, 79 cm langur og 6,5 kg. Krakkarnir voru mjög áhugasamir og spurðu margra spurninga. Þau ákváðu að kálfurinn ætti að heita Sævar þar sem hann hefði átt heima í sjónum. Ljósm. Ólafía Lárusdóttir

Auglýsing vegna húsaleigubóta

Grunnbætur húsaleigubóta fyrir hverja íbúð hækka úr 8.000 kr. í 13.500 kr. á mánuði. Bætur vegna fyrsta barns hækka úr 7.000 kr. í 14.000 kr.á mánuði. Bætur vegna annars barns hækka úr 6.000 kr. í 8.500 kr. á mánuði. Hámarkshúsaleigubætur hækka úr 31.000 kr. í 46.000 kr. á mánuði. Aðrar grunnfjárhæðir eru óbreyttar. Hækkunin tekur til greiðslu húsaleigubóta vegna aprílmánaðar sem koma til greiðslu um næstu mánaðarmót. Þeir sem telja sig eiga rétt á húsaleigubótum eftir þessar breytingar eru beðnir um að skila inn umsókn sem fyrst. Reiknivél Félagsmálaráðuneytis fyrir húsaleigubætur má finna hér http://www.felagsmalaraduneyti.is/malaflokkar/husnaedismal/husaleigubaetur/reikniforrit/nr/964