Úthlutun verkefnastyrkja

Úthlutun verkefnastyrkja Menningarráðs Norðurlands vestra fer fram í Félagsheimilinu á Blönduósi laugardaginn 5. apríl, kl. 15.45. Verkefnastyrkir Menningarráðs byggjast á þriggja ára samningi ríkisvaldsins og Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem undirritaður var 1. maí 2007. Samkvæmt honum er gert ráð fyrir rúmlega 30 milljón króna árlegu framlagi ríkisins til menningarmála á Norðurlandi vestra. Auk þess að sjá um úthlutun verkefnastyrkja er hlutverk Menningarráðsins að standa fyrir þróunarstarfi í menningarmálum og hvetja til samstarfs og faglegra vinnubragða. Þá er ráðinu ætlað að efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista og styrkja starfsemi menningartengdrar ferðaþjónustu. Þetta er í annað sinn sem Menningarráðið úthlutar verkefnastyrkjum en fyrsta úthlutunin var í október 2007. Að þessu sinni verður úthlutað styrkjum til 55 aðila, samtals að fjárhæð 18,5 milljónir króna. Hæstu styrkirnir nema einni milljón króna. Þetta er fyrri úthlutun Menningarráðs á þessu ári, næsti umsóknarfrestur er 15. september nk. Menningarfulltrúi

Ráðstefna um menningartengda ferðaþjónustu

Laugardaginn 5. apríl stendur Menningarráð Norðurlands vestra fyrir ráðstefnu um menningartengda ferðaþjónustu. Ráðstefnan verður haldin í Félagsheimilinu á Blönduósi og hefst kl. 13.00 með ávarpi ferðamálastjóra. http://www.skagastrond.is/frettir/users3/stjori/Dagskrá%20fundar%20menningarráðs%202008.pdf Menningarráði Norðurlands vestra er m.a. ætlað að vera samstarfsvettvangur um menningarmál í fjórðungnum. Stefna ráðsins er m.a. sú að auka samstarf í menningarmálum og stuðla að frekari kynningu á því menningarstarfi sem unnið er á svæðinu. Áhersla er lögð á að öflug menningarstarfsemi sé mikilvægur þáttur í því að skapa góð atvinnu- og búsetuskilyrði. Ráðstefnan er haldin undir kjörorðinu Samstarf til sóknar og er tilgangurinn að vekja athygli á möguleikum sem felast í samstarfi aðila er starfa að menningarmálum og ferðaþjónustu í landshlutanum. Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri, mun flytja ávarp við setningu ráðstefnunnar. Þá mun Guðrún Þ. Gunnarsdóttir, deildarstjóri ferðamáladeildar Hólaskóla, flytja erindi sem hún nefnir „Sviðsetning menningartengdrar ferðaþjónustu“. „Menningin og við“ nefnist erindi Hrafnhildar Víglundsdóttur, framkvæmdastjóra Selaseturs Íslands á Hvammstanga en fyrirtækið er nýtt og hefur vakið mikla athygli fyrir fróðlegar og skemmtilegar sýningar. Eitt af leiðandi fyrirtækjum á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu er án efa Landnámssetrið í Borgarnesi. Kjartan Ragnarsson, framkvæmdastjóri þess, mun á ráðstefnunni flytja erindi sem hann nefnir „Landnámssetrið í samstarfi“ og fjallar þar um samstarf fyrirtækisins við aðra aðila á Vesturlandi. Rögnvaldur Guðmundsson, ferðamálaráðgjafi, hefur unnið víða um land með ferðþjónustuaðilum, sveitarfélögum og fleirum. Hann er formaður Samtaka um sögutengda ferðaþjónustu og mun á ráðstefnunni fjalla um árangur samtakanna og framtíðarsýn. Á meðan á ráðstefnunni stendur verður ljósmyndasýning í anddyri Félagsheimilisins sem er hluti af væntanlegri sýningu er nefnist Horft til himins og fékk á síðasta ári styrk frá Menningarráðinu. Í anddyrinu verður einnig sýnd á stórum sjónvarpsskjá upptaka af óperunni La Traviata eftir Verdi sem Ópera Skagafjarðar setti upp og sýndi á síðasta ári og naut til þess styrks frá Menningarráði. Hestaíþróttir eru vinsælar á Norðurlandi vestra og þess vegna mun Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi sýna í anddyrinu reiðföt karla og kvenna frá fyrri tíð. Nánari upplýsingar veitir: Ingibergur Guðmundsson Menningarfulltrúi Norðurlands vestra Sími: 892 3080 / 452 2901 Tölvupóstur: menning@ssnv.is

Páskabingó

Laugardaginn 22. mars heldur kvenfélagið Eining Páskabingó í félagsheimilinu Fellsborg Skagaströnd. Bingóið hefst kl 14:30 Verð: Fullorðnir 800 kr spjaldið 16 ára og yngri 500 kr Aukaspjald í hléi kr 250 Kaffiveitingar í hléi 600 kr Fjöldi veglegra vinninga. Gleðilega páska! Kvenfélagið Eining

Húnvetnskt hugvit

Það er gaman að segja frá því að Þróunarverkefni ð „Huglægur matslisti Gerd Strand“ sem skólafólk beggja Húnavatnssýslna þróaði hefur hlotið verðskuldaða athygli. Þegar hafa verið haldin tvö námskeið sem veita þátttakendum réttindi til að nota matslistann. Einnig hafa fræðsluyfirvöld víðsvegar af landinu sýnt listanum áhuga og óskað eftir frekari kynningu. Listinn verður kynntur í Menntamálaráðuneytinu á næstunni og er það okkur sem höfum staðið að gerð listans mikill heiður og viðurkenning. Fyrsta námskeiðið sem veitir réttindi til að nota listann var haldið í grunnskólanum á Dalvík fyrir 15 grunnskólakennara í Dalvíkur- og Fjallabyggð. Annað námskeiðið var haldið í Hafnarfirði í tengslum við skólaskrifstofu Hafnarfjarðar og sóttu það 17 grunnskólakennarar. Við erum því harla ánægð með viðtökurnar. Mynd: 1.Þátttakendur í Dalvíkur- og Fjallabyggð 2.Sigríður og Guðbjörg með kennurum úr Hafnarfirði að loknu réttindatökunámskeiði

Einstaklingsmiðað nám

Námskeið um einstaklingsmiðaðar áherslur í kennslu barna og unglinga var haldið á vegum Fræðsluskrifstofunnar þann 11. mars s.l. í félagsheimilinu á Blönduósi. Á námskeiðinu var fjallað um hvernig hægt er að auka þátttöku, virkni og ábyrgð nemenda á eigin námi. Einnig var fjallað um hvernig vinna má á fjölbreyttan hátt í skólastofunni með skapandi verkefni sem leið til að koma til móts við ólíka getu, þarfir og áhugamál nemenda. Kennari á námskeiðinu var Jóhanna Karlsdóttir, lektor í kennslufræði við Kennaraháskóla Íslands. Mynd: Þátttakendur og Leiðbeinandi.

Janus í Kántrýbæ

Félagarnir í hljómsveitinni Janus frá Skagaströnd ætla nú sem fyrr að koma saman í Kántrýbæ á Skagaströnd, föstudaginn 21.mars næstkomandi og taka nokkur létt lög. Það mun vera hefð fyrir þessari samkomu þeirra félaga,en fyrir 20 árum þá spiluðu þeir saman á dansleikjum norðanlands við ágætan orðstír. Forsprakki hljómsveitarinn mun vera aðeins þekktari sem gítarleikari Sálarinn hans Jóns míns sem er líka ágæt hljómsveit,en hann heitir Guðmundur Jónsson. Það munu allir húnvetningar vera velkomnir og einnig Strandamenn,svo er ekki útilokað að Skagfirðingar séu velkomnir líka.

Afmælisganga á Skagaströnd

Miðvikudaginn 19. mars er liðið eitt ár frá því að Vinnumálastofnun tók til starfa á Skagaströnd. Af því tilefni ætlum við á Vinnumálastofnun að efna til afmælisgöngu og bjóðum öllum sem vilja samfagna eða bara hreyfa sig að bregða sér með í göngutúrinn. Gengið verður frá Túnbrautinni á Skagaströnd í gegnum bæinn og upp á Höfða. Á Höfðanum tökum við léttar teygjur, syngjum afmælissönginn og höldum svo sömu leið til baka og beint í páskafrí. Við leggjum af stað klukkan 16:00. Við viljum jafnframt þakka öllu okkar samstarfsfólki og viðskiptavinum fyrir gott samstarf á þessu fyrsta ári okkar og vonum að með auknum þroska getum við skilað enn betri þjónustu. Bestu óskir um gleðilega páska. Starfsfólk Vinnumálastofnunar Nl.v. - Greiðslustofu Líney Árnadóttir Forstöðumaður Vinnumálastofnun - Greiðslustofa Túnbraut 1-3 - 545 Skagaströnd Sími: 582 4900 / Fax: 582 4920 liney.arnadottir@vmst.is www.vinnumalastofnun.is

Listasýning í Landsbankanum

Jæja þá fer hver að verða síðastur að sjá listsýninguna í Landsbankanum sem börnin í leikskólanum hafa unnið að. Á sýningunni er fjallað um Spákonufell, Þórdísi spákonu og allt lífríki fjallsins í máli og myndum. Endilega komið og njótið og fræðist um fallega fjallið okkar Spákonufell. Sýningunni líkur í næstu viku.

Tundurdufl sprengt í Hrafndal

Mikill sprengikraftur var í tundurdufli sem sprengt var á Hrafndal í gærkvöldi. Hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson fékk tundurdufl í trollið út á Húnaflóa og kom til hafnar á Skagaströnd. Áður en skipið kom upp að bryggju hafði björgunarskipið Húnabjörg flutt sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar um borð til að gera duflið óvirkt. Rafhleðslan í duflinu var orðin ónýt en ákveðin áhætta getur fylgt tundurduflum og því er allrar varúðar gætt og duflin meðhöndluð af sérfræðingum. Undir stjórn sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar flutti Björgunarsveitin Strönd síðan duflið upp í Hrafndal í fylgd lögreglu þar sem það var sprengt um kl 19.30. Hvellur við sprenginuna var geysimikill enda um að ræða 135 kg af TNT sprengiefni. Í kjölfar sprengingarinnar var feiknaleg höggbylgja sem skók til bifreiðar í 500 m fjarlægð. Talið er að á stríðsárunum, fyrir rúmum 60 árum, hafi verið lögð í sjó um 120 þúsund tundurdufl í hafsvæðinu í kringum Ísland. Tundurduflabelti voru þá út af Vestfjörðum, í Faxaflóa, Hvalfirði, Eyjafirði og Seyðisfirði. Íslenskir sjómenn hafa því frá lokum seinna stríðs oft fengið dufl í veiðarfærin eða séð þau á reki.og samkvæmt upplýsingum sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar hafa um 5000 slík dufl fundist og verið eytt. Á seinni árum hafa fimm til sex dufl fundist á ári. Þó að öryggisbúnaður sé í flestum tundurduflum sem á að gera þau óvirk ef þau fljóta upp er aldrei hægt að treysta á hann. Tundurdufl geta verið virk áratugum saman. Undanfarin ár er þó fátítt að duflin springi þegar þau koma upp með veiðarfærum og eingungis þekkt eitt dæmi um það frá 1955 þegar togarinn Fylkir sökk eftir að tundurdufl sprakk á síðunni.

Starf framkvæmdastjóra vaxtasamnings

Framkvæmdastjóri Vaxtarsamnings Norðurlands vestra Starfslýsing: Í megindráttum felur starf framkvæmdastjórans í sér umsjón og samræmingu yfir starfi tveggja klasa þ.e. menntunar og rannsóknar, menningar og ferðaþjónustu. Framkvæmdastjóri vinnur náið með stjórn samningsins og fer eftir stefnu og áherslum sem settar eru af stjórn. Framkvæmdastjóri heyrir undir stjórn og starfar á skrifstofu Vaxtarsamningsins á Sauðárkróki. Nánari lýsing verkefna: · Yfirumsjón með starfsemi Vaxtarsamnings og klasauppbyggingu · Skýrslugerð og upplýsingagjöf til stjórnar · Kynning á starfi, markmiðum og verkefnum Vaxtarsamnings · Önnur verkefni sem stjórn Vaxtarsamningsins felur starfsmanni s.s. ráðgjöf til fyrirtækja og einstaklinga og verkefnastjórn Kröfur um menntun og reynslu: · Háskólamenntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi · Góð íslensku- og enskukunnátta · Góð tölvukunnátta · Hæfni í mannlegum samskiptum · Frumkvæði og metnaður í starfi Skriflegar umsóknir, sem tilgreina m.a. menntun og fyrri störf, skulu sendar á skrifstofu Blönduóssbæjar, Hnjúkabyggð 33, 540 Blönduósi, og merktar framkvæmdastjóri Vaxtarsamnings Norðurlands vestra. Umsóknir skulu jafnframt sendar rafrænt á arnar@blonduos.is Umsóknarfrestur er til 19. mars n.k. Nánari upplýsingar um starfið veitir Arnar Þór Sævarsson, formaður stjórnar Vaxtarsamnings Norðurlands vestra. Netfang: arnar@blonduos.is NÝPRENT ehf.