Tónleikar Húnakórsins 26. apríl 2008

Húnakórinn heldur tónleika í Hólaneskirkju Skagaströnd laugardaginn 26.april kl.17.Fjölbreytt dagskrá m.a. syrpa við ljóð eftir Davíð Stefánsson. stjórnandi Jón Bjarnason undirleikari Bjartur Logi Guðnason aðgangseyrir kr.1500.

Tækifæri í ferðaþjónustu

Þriðjudaginn 22. apríl 2008 kl. 17:00 mun Markaðsskrifstofa Norðurlands efna til fundar á Skagaströnd í samráði við atvinnuráðgjafa undir heitinu: http://www.skagastrond.is/frettir/users3/stjori/Fundarboð.pdf Tækifæri í ferðaþjónustu Fundurinn verður haldinn í litla salnum í félagsheimilinu Fellsborg og hefst kl. 17.00. Gert er ráð fyrir að honum verði lokið eigi síðar en 18.30. Kjartan Lárusson framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu Norðurlands mun halda stutt erindi og ræða við fundargesti um möguleika í ferðaþjónustu á Skagaströnd og nágrenni. Einnig mun Katrín Harðardóttir, verkefnisstjóri Markaðsskrifstofunnar mæta á fundinn. Tilgangurinn með fundinum er að hvetja til uppbyggingar á ferðaþjónustu á Skagaströnd og nágrenni. Víða leynast miklir möguleikar í margvíslegri afþreyingu sem styrkt getur búsetuþróun á svæðinu. Nefna má ýmiss konar rekstur: Fjórhjólaferðir Fuglaskoðun Göngur og réttir Gönguferðir Gönguskíðaferðir Heilsurækt Hestaferðir Hjólaferðir Hvalaskoðun Jeppaferðir Kajaksiglingar Miðnæturgolf Minjagripasala Snjósleðaferðir Skoðunarferðir í bát Skoðunarferðir í rútu Silungsveiði Sjóstangveiði Sveitadvöl Svæðisleiðsögn Söfn og setur Veitingar Sagnaarfur … og fleira ofl. Margt af þessu þótti á sínum tíma alls ekki gáfulegt en þykir nú sjálfsagður og nauðsynlegur þáttur í þjónustu við innlenda og erlenda ferðamenn. Allir eru velkomnir og er áhugasömum bent á að vekja athygli annarra á fundinum. Sigurður Sigurðarson markaðsráðgjafi Sveitarfélagið Skagaströnd Handsími 864 90 10 Netfang: radgjafi@skagastrond.is Vefur: www.skagastrond.is

Styrkir úr Menningarsjóði Skagastrandar

Tómstunda- og menningarmálanefnd auglýsir eftir styrkumsóknum úr Menningarsjóði Sveitarfélagsins Skagastrandar. Umsóknir geta átt við hvers konar menningarstarf, en sérstaklega er bent á myndlist, tónlist, leiklist, ritlist, varðveislu menningar og ýmsa menningarviðburði. Forsenda úthlutunar er að styrkþegar efli menningu í sveitarfélaginu og að umsækjandi eigi þar heimilisfesti. Umsóknareyðublað og reglur um menningarsjóð eru á skrifstofu sveitarfélagsins. Umsóknafrestur er til 15. maí 2008. Tómstunda- og menningarmálanefnd Skagastrandar

Fallbyssa til Skagastrandar

Á fundi sveitarstjórnar 15. apríl 2008 var samþykkt að styrkja áhugahóp um gömlu fallbyssurnar á Skagaströnd um 500 þús kr til að flytja inn fallbyssu frá Danmörku. Fallbyssan er eftirlíking af fallstykkjum frá 17. – 18. öld og er 1400 mm að lengd og vegur 60 kg. Hægt er að hlaða byssuna og skjóta úr henni púðurskotum. Hún er gerð fyrir sérstök cal. 12 “salutpatron”. Framleiðandi / seljandi gerir einnig þá kröfu fyrir afhendingu byssunnar að viðtakandi og ábyrgðarmaður komi til Danmerkur og læri á byssuna. Fremstillet af bronze Forsaga þessa máls er sú að í gömlum annálum um Skagaströnd er þess getið að fyrr á öldum þegar Skagaströnd var aðal verslunarstaður Húnavatnssýslu og víðar þá voru til á staðnum tvö fallstykki. Segir sagan að skotið hafi verið úr þessum fallstykkjum við kaupskipakomur. Heyrðist þá hvellurinn víða og vissu þá bændur og búalið að kaupskip var komið í Höfða eins og sagt var í þá daga. Önnur fallbyssan var send til Þjóðminjasafnsins árið 1946 og er þar í einhverri geymslu. Hin fallbyssan sást síðast um 1960, þá hálfgrafin í jörð við bæinn Vindhæli í Skagabyggð. Ekki hefur reynst unnt að fá byssuna úr Þjóðminjasafninu og fallstykkið sem talið er að hafi verið við Vindhæli hefur ekki fundist. Hugmyndin er því nú að fá nýja/nýlega fallbyssu keypta til að endurvekja þessa gömlu sögu Skagastrandar. Eftir töluverða leit fannst framleiðandi í Danmörku sem vill selja fallbyssu til Skagastrandar. Fallbyssa þessi yrði eign Sjóminja- og sögusafns Skagastrandar. Hugmyndin er að nota fallbyssuna á hátíðis og tyllidögum og skjóta þá nokkrum púðurskotum fólki til skemmtunar. Þetta hafa nokkrir kaupstaðir hér á landi gert. T.d. Akureyri, Seyðisfjörður og Vestmannaeyjar.

Samningur um

Á fundi sveitarstjórnar 15. apríl sl. var samþykktur samningur milli Sveitarfélagsins Skagastrandar og Menningarfélagsins Spákonuarfs ehf. um heimildasöfnun um gömul hús og byggðina á Skagaströnd Verkið er fólgið í söfnun heimilda annars vegar um þau hús sem horfin eru, sögur þeirra, uppruna og endalok og hins vegar um þau eldri hús sem enn standa. Heimildum verður safnað um hús sem stóðu á Skagaströnd á árabilinu 1840-1940. Þrátt fyrir að síðara ártalið sé sett 1940 er miðað við hús sem stóðu eftir þann tíma og standa jafnvel enn. Einnig um önnur hús en íbúðarhús sem skiptu máli á þessum tíma ss. verslunarhús, þinghús, skólahús, verthús osfrv. Heimilda verður leitað um: Hvar húsin stóðu, ( lýsing, meking á kort ) Hvenær þau voru byggð, ( byggingarefni ef er þekkt) Hver byggði Hvar þau stóðu áður ef slíkt á við ( Kálfshamarsvíkurhúsin) Hverjir bjuggu í húsunum á hverjum tíma Til hvers þau voru notuð ef ekki er um íbúðarhúsnæði að ræða Hvenær þau voru rifin eða hætt að búa í þeim. Verkefnið tekur til húsa innan núverandi sveitarfélagsmarka Skagastrandar og nær því út fyrir þéttbýlið. Fell, Háagerði, Finnstaðir ofl. eiga því heima í hópi þeirra húsa sem heimildum skal safna um. Verkefnið er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar þriðjudaginn 15. apríl 2008 á skrifstofu hreppsins kl 800. Dagskrá: 1. Þriggja ára áætlun 2009-2011 2. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, áætlun 2008. 4. Verkefnið „Húsin okkar“ 5. Gerð sjóvarnar með Fjörubraut 6. Bréf: a) Umsjónarmanns Námsstofu dags. 11. apríl 2008 b) Skólahreysti, dagsett í mars 2008 c) Ágústs Þórs Bragasonar, dags. 25. mars 2008. d) Skagastrandardeildar RKÍ, dags. 18. mars 2008. e) Húsafriðunarnefndar, dags. 18. mars 2008. f) Landgræðslu ríkisins, dags. 14. mars 2008. g) Hugrúnar S. Hallgrímsdóttur og Jóns Ólafs Sigurjónssonar, dags. 4. apríl 2008. h) Elina Lehto – Häggroth bæjarstjóra Lohja, dags. 3. apríl 2008. 7. Fundargerðir a) Tómstunda- og menningarmálanefndar, 11. mars 2008. b) Samráðsfundar fámennra sv.fél. 3. apríl 2008. c) XXII. landsþings Sambands ísl. sv.fél. 7. apríl 2008. d) Stjórnar SSNV, 12. febrúar 2008. e) Stjórnar SSNV, 1. apríl 2008. f) Stjórnar Sambands ísl. sv.fél. 28. mars 2008. 8. Önnur mál Sveitarstjóri

Sumarstörf hjá Sveitarfélaginu Skagaströnd

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir flokkstjórum til starfa í Vinnuskólanum sumarið 2008. Æskilegt er að umsækjendur séu 20 ára eða eldri. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Svf. Skagastrandar og er umsóknarfrestur til 25. apríl. Nánari upplýsingar veitir Ágúst Þór í síma 899 0895 eða á netfangi agust@skagastrond.is Sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagastrandar

Átján og hálf milljón í menningarstyrki

undefined

SUMARSTARF Í SUNDLAUG

Laust er til umsóknar sumarstarf í sundlaug Skagastrandar. Æskilegt er að umsækjendur séu eldri en 20 ára, hafi farið á skyndihjálparnámskeið og séu með a.m.k 9. stig í sundi. Upplýsingar um starfið gefur Árni Geir í síma 861 4267. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu sveitarfélagsins. Umsjónarmaður sundlaugar.

Framsagnarkeppni

Fimmtudaginn 3. apríl var haldin að Húnavöllum árleg framsagnarkeppni grunnskólanna í Húnavatnsþingi. Keppnin er haldin til minningar um Grím Gíslason frá Saurbæ í Vatnsdal. Keppendur voru tólf og lásu þrisvar hver. Fyrst var lesinn kafli úr sögu eftir Jón Sveinson og síðan kvæði eftir Stein Steinarr og að lokum kvæði að eigin vali. Allir keppendur stóðu sig vel og hlutu lof dómara og áheyrenda. Það var því erfitt verk að úrskurða hverjir hefðu staðið sig best. Sigurvegarar keppninnar að þessu sinni voru: 1. Eydís Sigurðardóttir, Húnavallaskóla 2. Alma Dröfn Vignisdóttir, Höfðaskóla 3. Árný Dögg Kristjánsdóttir, Grunnskólanum á Blönduósi Sérstök aukaverðlaun fyrir vandaðan lestur hlutu þau: Bragi Hólm Birkisson, Húnavallaskóla og Kristín Karen Karlsdóttir, Grunnskóla Húnaþings vestra. Myndir: Sigurvegarar keppninnar Formaður dómnefndar, Þórður Helgason, tilkynnir úrslit