Allt flott við Fellsborg

Umhverfi Fellsborgar hefur tekið miklum stakkaskiptum að undanförnu. Bílastæðið hefur verið malbikað, kantsteinar steyptir, ljósastaurar settir upp, verið er að helluleggja fyrir framan innganginn, og innan skamms verða lagðar túnþökur meðfram framkvæmdasvæðinu og loks er ætlunin að mála bílastæði. Bílastæðið er 2100 fermetrar að stærð, þar verður pláss fyrir 71 bíl og það verður allt upplýst. Óhætt er að fullyrða að vel hefur tekist til hjá Árna Geir og samstarfsmönnum hans, en þeir eru Stefán Sveinsson, Vilhjálmur Jónsson, Gunnar Tryggvi Ómarsson og Ragnar Már Björnsson.

Signý og Ingibergur unnu

Mikið grín og mikið gaman var í spurningakeppninni „Drekktu betur“ sem haldin var í Kántrýbæ á föstudagskvöldið.  Stjórnandi og spyrill í þetta sinn var Ólafía Lárusdóttir, starfsmaður BioPol ehf. Mörgum þóttu spurningarnar þungar en engu að síður náði sigurliðið 23 stigum sem var það sama og sigurliðið fékk í keppninni fyrir hálfum mánuði.   Hjónin Signý Ósk Richter og Ingibergur Guðmundsson sigruðu að þessu sinni og fengu Carlsberg bjórkassa í verðlaun.  Nokkuð færri höfðu bjórspurninguna rétta, en spurt var hvaða tindur landsins  er næst hæstur. Svarið sem Ólafía gaf upp var Bárðarbunga, 2000 m. Sjö manns voru með rétt svar sem er snöggtum færra en síðast þegar nær hálfur salurinn gat sér til um að lengra væri til Færeyja en Grænlands.   Næsta keppni verður 24. október og þá verður Hjörtur Guðbjartsson  spyrill.

Drekktu betur ... í kvöld

Spurningakeppni „Drekktu betur“ verður í kvöld í Kántrýbæ og er þetta í annað skiptið sem hún er haldin. Ókeypis er inn og ekkert kostar heldur að taka þátt. Keppnin fer þannig fram að lesnar eru upp spurningar og viðstaddir skrifa niður svörin. Að því loknu, eftir þrjátíu spurningar, er farið yfir svörin. Það gera þátttakendur sjálfir, þeir skiptast á blöðum og spyrillinn les upp rétt svör og dæmir í vafaatriðum. Spyrill í kvöld verður Ólafía Lárusdóttir, starfsmaður BioPol ehf á Skagaströnd. Óhætt er að lofa skepptilegum spurningum og fjölbreyttum. Auðvitað er tilgangurinn sá að skemmta sér og njóta samvista við aðra. Ekki spillir að bjórkassi er í verðlaun fyrir þá sem hafa flestar spurningar réttar, en þær verða að vera minnsta kosti að fimmtán, þ.e. helmingurinn. Að auki er ein „bjórspurning“, þ.e. allir sem hafa svarið rétt fá fullt bjórglas í verðlaun. Síðast mættu rétt tæplega sextíu manns og búast má við enn fleirum núna. Keppnin hefst stundvíslega klukkan 21:30 í kvöld.

Næsti fundur sveitarstjórnar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Skagastrandar miðvikudaginn 8. október 2008 á skrifstofu sveitarfélagsins kl 800. Dagskrá:   1.       Fjármál og framkvæmdir 2.       Erindi til fjárlaganefndar 3.       Atvinnumál 4.       Félags- og skólaþjónusta A-Hún a)    Fundargerð stjórnar, 1. okt. 2008. b)   Fjárhagsáætlun 2008, endurskoðuð útgáfa. c)    Ábyrgð vegna lántöku í Lánasjóði sv.fél.   5.       Aðalskipulag a)    Drög að aðalskipulagi (sept 08) b)   Matslýsing vegna aðalskipulags (18.09.2008) c)    Fornleifaskráning Skagastrandar (tilboð í verkið)   6.       Bréf: a)    Eignarhaldsfélag BÍ, dags. 2. okt. 2008. b)   SSNV atvinnuþróunar c)    Umboðsmanns barna, dags. 20. sep. 2008. d)   Stjórnar smábátafélagsins Skalla, dags. 18. sept. 2008. e)    Alþjóðahúss á Norðurlandi, dags. 23. sept. 2008. f)     Strætó bs. dags. 17. sept. 2008. g)    Þórðar Skúlasonar, dags. 1. sept. 2008. h)   MX-klúbbs Skagastrandar, dags. 4. sept. 2008.   7.       Fundargerðir a)        Skipulags- og byggarnefnd, 15.09.2008 b)       Stjórnar Tónlistarskóla A-Hún, 10.09.2008 c)        Stjórnar Byggðasaml um menningar og atvinnum. 31.07.08 d)       Heilbrigðisnefndar Nl.vestra, 26.08.2008. e)        Stjórnar Norðurár bs. 20.08.2008 f)         Stjórnar SSNV, 3.09.2008 g)        Ársþings SSNV, 19.-20.09.2008 h)       Stjórnar Sambands ísl. sv.fél, 22.08.2008.   8.       Önnur mál

Rósamál í Bjarmanesi á fimmtudaginn

    Rósamál heitir hin nýja ljóðabók Steinunnar P. Hafstað. Hún mun lesa upp úr bókinni fimmtudaginn 9. október næstkomandi í Kaffíhúsinu Bjarmanesi á Skagaströnd. Bók sem verð er allrar athygli. Í bókinni eru mögnuð ljóð, rík að lífsvisku og dýpt sem snertir strengi í hjarta lesandans. Steinunn P. Hafstað er fædd í Reykjavík og gaf út fyrstu bók sína fyrir fjórum árum ljóðabókina „Vertu sem lengst“. Í ljóðum Steinunnar er sannarlega engin lognmolla, en í þeim felst samt mikill friður, gleði og einlæg sátt.

Listamenn í október

    Núna um mánaðamótin komu nýjir listamenn í Nes-listamiðstöðina á Skagaströnd. Nokkur forföll hafa verið úr hópnum en þessir koma og eru þeir að sjálfsögðu boðnir velkomnir:   Anna S. Björnsdóttir  - rithöfundur og ljóðskáld  Sverrir Sveinn Sigurðsson - rithöfundur William Schlough - myndlistarmaður Kate Dambach - myndlistarmaður en hún kom í byrjun september og verður út nóvember Noemi Romano - hönnuður og textíllistamaður   Tveir listamenn af þeim sem voru hér í september munu koma aftur eftir áramótin, en það eru Jessica Langley og Ben Kingsley, bæði myndlistamenn frá Bandaríkjunum.    

Virðing og umhyggja - ákall 21. aldar

Námskeið á vegum Fræðsluskrifstofu A-Hún.   Sigrún Aðalbjarnardóttir, prófessor við Háskóla Íslands, hélt námskeið fyrir kennara leik- og grunnskóla Húnavatnssýslna og Borðeyrar 25. september síðast liðinn. Umfjöllunarefnið var gagnkvæm virðing og umhyggja og hvernig  byggja á upp góðan bekkjar- og skólabrag og styrkja nemandann félagslega og námslega. Nálgaðist hún efnið þannig að fræði og framkvæmd voru tengd nánum böndum. Sérstaka áherslu lagði hún á leiðir við að leysa árekstra og ágreiningsmál. Þátttakendur unnu einnig verkefni í hópum. Myndir: Þátttakendur og  leiðbeinandi.  

Spurningakeppnin „Drekktu betur“

Guðbjörg Ólafsdóttir og Finnur Kristinsson sigruðu í spurningakeppninni „Drekktu betur“ í Kántrýbæ. Tæplega sextíu manns mættu og skemmtu sér hið besta enda spurningarnar frekar léttar.   Mjótt var á mununum í keppninni. Guðbjörg og Finnur fengu 23 stig en tvö önnur lið komu þétt á hæla þeirra með 22 stig. Bjórspurningin taldist líklega allt of létt. því henni svöruðu líklega þriðjungur liða rétt og í kjölfarið varð mikil örtröð á barnum enda bjórglas í verðlaun.  Keppnin þótti ágæt skemmtun og þátttakendur voru allir vel með á nótunum og létu til dæmis stjórnanda heyra það óþvegið þegar hann hélt því fram að KR væri Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu. Yfirleitt er sá sem spyr bæði dómari og alvaldur og þýðir ekkert að tjónka við hann jafnvel þó hann hafi sannarlega rangt fyrir sér. Í þetta skipti sá hann hins vegar að sér og var ljúfur og góður það sem eftir lifði leiks þrátt fyrir framíköll og glósur þátttakenda.   Spurningar í keppninni voru þrjátíu og var keppt í tveggja manna liðum. Gera má ráð fyrir að það taki rétt tæplega tvo tíma að spyrja spurninganna og fara yfir svörin, en hluti af leiknum er að fara yfir svör annarra.  Næsta keppni verður föstudaginn 10. október og stjórnandi verður þá Ólafía Lárusdóttir, starfsmaður BioPol ehf. á Skagaströnd.

Upplýsinga- og fræðslufundur skólastjóra Grunnskólanna

Þann 26. september lögðu skólastjórar Grunnskóla Húnavatnssýslna land undir fót og heimsóttu Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. Tilgangur ferðarinnar var að hitta Birnu Sigurjónsdóttur, sérfræðing á menntasviði, og hlýða á hana útskýra hvernig staðið er að ytra og innra mati á skólastarfi grunnskóla borgarinnar. Í nýjum lögum um grunnskóla er enn meiri áhersla en áður lögð á mikilvægi mats á skólastarfi. Þátttakendur héldu margs fróðari af fundinum og telja sig betur í stakk búna að framfylgja lagaákvæðum nýrra grunnskólalaga. Mynd: Skólastjórar Húnavatnssýslna á fundi í Reykjavík

Súpa og sagnaleikur

    Leikritið Þórdís spákona verður frumsýnt á Skagaströnd laugardaginn 4. október næstkomandi. Það er Spákonuarfur á Skagaströnd sem stendur fyrir sýningunni.  Söguritunin var í höndum Sigrúnar Lárusdóttur, Dagnýjar Marínar Sigmarsdóttur og Svövu G.Sigurðardóttur en Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson færði sögu Þórdísar í leikrænan búning. Leikstjóri er Bryndís Petra Bragadóttir  og öll hlutverk eru í höndum heimamanna.  Meðfylgjandi mynd var tekin á æfingu af Jénsínu Lýðsdóttur og Helenu Mara Velemir.   Í október árið 2007 fékk félagið Spákonuarfur á Skagaströnd styrk frá Menningarráði Norðurlands vestra til þess að rita sögu Þórdísar spákonu, en hún var kvenskörungur en sagt er frá henni í nokkrum fornritum og einnig þjóðsögum. Samkvæmt heimildum bjó Þórdís við rætur Spákonufells á Skagaströnd og er hún fyrsti íbúinn sem sögur fara af á þessum slóðum. Hún var sögð tveggja framsýn og fjölkunnug og þekkt fyrir að hafa fóstraði Þorvald víðförla.   Í framhaldi af sögurituninni  hefur Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson fært sögu Þórdísar í leikrænan búning.  Æfingar hafa staðið yfir undanfarnar vikur undir leikstjórn Bryndísar Petru Bragadóttur. Eru öll hlutverk í höndum heimamanna. Verkið verður frumsýnt laugardaginn 4. október og síðan verður einnig sýning kvöldið eftir. Í upphafi sýningar verður leikhúsgestum boðið upp á þjóðlegar veitingar í formi kjötsúpu.