Hólaneskirkja fær Guðbrandsbiblíu að gjöf

Á aðventustund í Hólaneskirkju, þann 7. desember sl., var kirkjunni formlega færð Guðbrandsbiblía að gjöf. Gefandi er Aðalheiður Þorleifsdóttir, búsett á Akureyri, móðir Péturs Eggertssonar forstöðumanns Dvalarheimilisins Sæborgar á Skagaströnd. Biblían er ljósprentað eintak nr. 312 af þeim 500 eintökum sem ljósprentuð voru veturinn 1956-57. Hún er ljósprentuð eftir frumútgáfu sem Guðbrandur Þorláksson (f. á Staðarbakka í Miðfirði 1542; d. 1627) Hólabiskup gaf Knappstaðakirkju í Fljótum skömmu eftir að hann hafði látið prenta, árið 1584, 500 eintök af hinni svokölluðu Guðbrandsbiblíu, þ.e. fyrstu útgáfu Biblíunnar á íslenskri tungu. Sú Biblía er kennd við Guðbrand sökum þess að hann stóð fyrir því í orði og verki að láta prenta hana er hann sat á biskupsstóli á Hólum árin 1571-1627. Hann þýddi m.a. sjálfur stóran hluta af Gamla testamentinu en notaði þýðingu Odds Gottskálkssonar á Nýja testamentinu, auk þess sem hann keypti prentsmiðju frá Breiðabólstað í Vesturhópi og flutti heim að Hólum í Hjaltadal til þess að geta fullkomnað verkið. Af framsögðu þarf ekki að undra að fræðimenn séu flestir á þeirri skoðun að útgáfa Guðbrandsbiblíu sé eitthvert mesta stórvirki íslenskrar menningarsögu og eru Skagstrendingar afar þakklátir og ánægðir að hafa fengið til varðveislu ljósprentað eintak af þessu mikla menningarlega verðmæti. M.M.

Upptökubraut fyrir smábáta tekin í notkun

Nýbyggð upptökubraut fyrir smábáta var tekin í notkun í dag mánudaginni 8. desember þegar Bylgja RE 77 var dregin á land um brautina. Brautin var byggð núna í vetur og er unnin í samstarfi Skagastrandarhafnar og Siglingastofnunar. Með tilkomu hennar batnar aðstaða eigenda smábáta til mikilla muna þar sem miklu öruggara og þægilegra verður að sjósetja og taka á land báta í vögnum. Um er að ræða 15 m langa og 5 m breiða steypta braut sem var byggð af Trésmiðju Helga Gunnarssonar. Samhliða byggingu hennar var gengið frá fyllingu og grjótvörn á svæðinu kringum brautina. Það verk ásamt fyllingu undir brautina var unnið af þeim Víðimelsbræðrum, Jóni og Sveini Árnasonum sem voru verktakar við sjóvarnir á Skagaströnd og Blönduósi

Piparkökudagur leikskólans

Laugardaginn 29. nóvember síðastliðinn, var hefðbundinn piparkökudagur á leikskólanum. Börnin komu með foreldrum sínum og systkinum, skáru út kökur úr deiginu sem hún Ásthildur í eldhúsinu var búin að útbúa fyrir alla. Einhverjir tóku líka ömmur og afa með sér, en margar ömmur hafa bakað mikið um dagana og eru ráðagóðar í bakstrinum. Stundum verður þó minna úr deiginu en efni standa til, því sumt ratar beina leið í magann áður en það verður að köku. En það sem kemur út úr ofninum er svo skreytt fagurlega, með gulu, rauðu og grænum glassúr. Þessi glassúr á það þó stundum til að þykkna og festast í skeiðinni eða á pinnanum. Þá er eina ráðið að sleikja þetta bara almennilega af og halda svo áfram að skeyta. Inn á milli fá svo mömmur og pabbar, afa og ömmur kaffisopa og börnin djús og jólalögin eru spiluð til að koma öllum í gott jólaskap. Helga Bergsdóttir leikskólastjóri

Árshátíð Höfðaskóla

Föstudaginn 28. nóvember var árshátíð Höfðaskóla haldin í Fellsborg fyrir fullu húsi.Árshátíðin tókst með eindæmum vel og stóðu allir nemendur sig með sóma. 1. bekkur var með apasöng, 2. bekkur söng lag úr Grease, 3. bekkur flutti Karnival dýranna, 4. bekkur sýndi leikritið um Mjallhvíti í endurbættri útgáfu, 5. bekkur var með Kennara-Idol, 6. bekkur sýndi þátt úr Survivor, 7. bekkur var með Bachelor atriði og nemendur 8.- 10. bekkja fluttu frumsamið leikrit sem hét Stefnumótið. Þá voru kennararnir með atriðið Minkurinn í hænsnakofanum. Hljómsveitin VIÐ sá um tónlistarflutning fyrir 2. bekk og unglingana, ásamt því að spila nokkur lög í lok árshátíðarinnar og á ballinu. Tertuhappdrætti var á milli atriða. Logi Vígþórsson stjórnaði dansi fyrri hluta diskóteksins og mæltist það vel fyrir hjá öllum. Skólafélagið Rán sá um skreytingar með aðstoð húsvarðar Fellsborgar. Þetta var hin besta skemmtun og fóru allir þreyttir en ánægðir heim um kvöldið. Fréttin með myndum er á heimasíðu skólans http://hofdaskoli.skagastrond.is/

Jólatré - jólatré

Kveikt verður á jólatrénu á Hnappstaðatúni fimmtudaginn 4. desember kl 17.30. Samkomulag hefur tekist við jólasveinafélagið um að jólasveinar mæti samkvæmt venju þótt opinber starfstími þeirra hefjist ekki fyrr en eftir nokkra daga. Börn eru hvött til að koma með foreldra sína og rifja upp jólalögin. Sveitarstjóri.

Nokkur ráð fyrir ritgerðasmíð!

Það vill oft vefjast fyrir fólki að setjast niður og skrifa ritgerð, nokkuð sem er stór hluti af öllu námi. Mörgum finnst þetta jafnvel óyfirstíganleg hindrun, ekki síst eftir langt hlé frá námi. Í þessu eins og öðru er ekki til nein töfralausn en það hjálpar að hafa í huga að nauðsynlegt er að vinna ritgerðir í þrepum. Þessi þrep eru að: - Ákveða efnið (oftast í samráði við kennara). - Ræða um efnið við alla sem nenna að hlusta og gefa góð ráð. - Skrifa niður lykilorð fyrir hvern kafla ritgerðarinnar. - Gera uppkast. - Lesa yfir uppkastið og bera það undir einhvern sem er tilbúinn að veita uppbyggilega gagnrýni. - Skrifa textann í ritvinnslu/word - Endurskoða inngangs-og lokaorð. - Lesa vel yfir textann og nota stafsetningarleiðréttingarforrit, ef það er í tölvunni eða fá einhvern til að lesa ritgerðina yfir. - Muna eftir forsíðu og setja efnið í snyrtilega möppu. Gangi ykkur vel.

Skráning á vormisseri.....

Fjarnámsnemar athugið.................. Innritun á vorönn 2004 í Fjölbrautaskólann við Ármúla verður í byrjun janúar 2004. Nánar auglýst síðar á heimasíðu skólans www.fa.is Innritun á vorönn 2004 í Verkmenntaskólann á Akureyri verður dagana 5.-8. janúar 2004 www.vma.is Innritun á vorönn 2004, við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, stendur yfir þessa dagana og lýkur 10. desember nk. www.fnv.is Innritun á vorönn 2004 í Iðnskólann í Reykjavík hefst 1. desember nk. Sendið tölvupóst á netfangið fjarnam@ir.is eða hafið samband við Iðnskólann í síma: 5226500 www.ir.is Einnig er hægt að fá upplýsingar og aðstoð við umsóknir á Námsstofu Skagastrandar í síma:4522747 eða með því að senda tölvupóst á netfangið namsstofa@skagastrond.is Umsjónarmaður Námsstofu Hjálmfríður Guðjónsdóttir

Næsti fundur hreppsnefndar

FUNDARBOÐ Fundur verður haldinn í Hreppsnefnd Höfðahrepps þriðjudaginn 25. nóvember 2003 á skrifstofu hreppsins kl 1600. Dagskrá: 1. Byggðakvóti, Erindi sjávarútvegsráðuneytis vegna reglna um úthlutun. 2. Héraðsnefnd A-Hún, fjárhagsáætlun. 3. Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi. 4. Bréf: a) Aðstandenda heimilismanna á Sæborgu, dags. 17.11.2003 b) Nemendafélags FNV, dags. í nóv. 2003. c) Norðurstrandar ehf. dags. 10. 11.2003. d) Samgönguráðherra, dags. 6.11.2003. e) Verkefnisstjórnar átaks í sameiningarmálum sveitarfélaga, dags. 28.11.2003. f) Ferðamálaráðs Íslands, dags. í nóv. 2003. 5. Fundargerðir: a) Skólanefndar, 19.11.2003. b) Byggingarnefndar, 12.11.2003. c) Héraðsráðs, 21.10.2003. d) Héraðsráðs, 18.11.2003. e) Verkfundar um svæðisskipulag, 29.10.2003. f) Heilbrigðisnefndar Nl.vestra 31.10.2003. 6. Önnur mál. Sveitarstjóri

Líkami og sál, jólagleði

Nú líður að lokum fjórða námskeiðsins í kvennaátakinu Líkama og sál. Auk hefðbundinna tíma í þolfimi og tækjasal var boðið upp á magadansnámskeið og skemmtikvöld í Kántrýbæ. Í lok námskeiðsins var efnt til jólagleði í Félagsheimilinu Fellsborg laugardaginn 22. desember s.l. Konurnar sáu sjálfar um skemmtiatriði, skreytingar og hluta af eldamennskunni. Þetta kvöld var ákveðið að leggja íþróttaskóna og lóðin á hilluna sem voru þó ekki langt undan því íþróttadótið var uppistaðan í borðskreytingum kvöldsins. Skemmtinefndin stóð fyrir sínu og konurnar brugðu sér m.a. í hlutverk jólasveinsins og hinnar óviðjafnanlegu Leoncie (Icyspicy), við frábærar undirtektir. Einkaþjálfari hópsins Angela Berthold greindi frá stærðabreytingum á hópnum á námskeiðstímanum og kom m.a. fram að konurnar höfðu samtals grennst um 56 cm um mjaðmir. Jólakveðja frá konunum í Líkama og sál

Prófin nálgast.................

Nú nálgast prófin og í mörgum skólum er fjarnemum boðið upp á þann möguleika að taka prófin í heimabyggð. Þeir sem vilja geta sótt um það til síns skóla, að taka prófin á Námsstofu, sem annast þá framkvæmd prófanna. Á það skal þó bent að það er alltaf ákvörðun viðkomandi skóla, hvar próf eru haldin.